153. löggjafarþing — 80. fundur,  14. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[15:52]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég deili einnig áhyggjum hv. þingmanns af fjölskyldusameiningu. Það er verið að rýra rétt fólks á henni. Maður veltir fyrir sér fjölskyldusameiningu: Er þetta mikilvægt og af hverju ætti okkur að finnast það og hvað felur þetta í sér? Fjölskyldusameining og að fólk geti búið sér heimili með fólkinu sínu án þess að vera þurfa að hræðast ofsóknir eða annað er það mikilvægasta sem við eigum að standa vörð um. Og í heiminum þar sem er vaxandi þunglyndi og miklu meiri einmanaleiki en áður þá eigum við að standa vörð um fjölskyldusameiningu, sama hver fjölskyldan er eða hvaða fólk þetta er. Við eigum alltaf að standa vörð um fjölskyldusameiningu. Ég vil að spyrja hv. þingmann hvort hann sé sammála mér í því að einnig sé verið að rýra réttindi fjölskyldusameiningar með þessu frumvarpi.