útlendingar.
Forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að gefa mér aftur tækifæri til að fjalla um þetta mál. Það sem hefur verið minn útgangspunktur í dag eru börn og líka fjölskyldur þeirra af því að það er svo mikilvægt í lífi barna að þau geti verið nálægt einhverjum sem þau treysta á, sem þau þekkja og sem þau vita að muni bera hag þeirra fyrir brjósti. Fylgdarlaus börn sem lenda hér á landi eiga við mjög erfiða fortíð að glíma. Þetta eru börn sem gjarnan hafa hrakist af einhverjum grimmilegum ástæðum svo langt norður í haf. Börn eru ekki að sækjast eftir að búa norður við heimskautsbaug nema af því að þau eru að leita skjóls þar sem þau trúa að komið verði fram við þau á mannsæmandi hátt.