153. löggjafarþing — 80. fundur,  14. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[15:55]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir góða og hjartahlýju ræðu. Það var greinilegt á henni að hann taldi að það sé vel hægt að bæta verulega í þann fjölda, þær þúsundir sem hér hafa komið á umliðnum árum. Það sé rétt að sveigja reglur og rúnna af þannig að það sé hægt að fá enn fleiri flóttamenn til landsins. Af því tilefni finnst mér rétt að spyrja: Hvað telur hann að íslenskt kerfi ráði vel við, hvaða fjölda? Eru engin efri mörk á því eða er ekkert sem takmarkar þá getu?

Nú heyrum við jafnvel úr því kerfi að þetta er jafnvel farið að valda ákveðnum vandræðum í skólakerfinu sem á að annast börn á flótta. Það er komið alla vega gult ljós í skólakerfinu hvað þetta varðar. Það væri fróðlegt að heyra hvort það hvort það séu einhver mörk á því hvað fjölda varðar.