153. löggjafarþing — 80. fundur,  14. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[15:59]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Hv. þingmaður talaði hér um að okkur vanti fólk. Það er nú einu sinni þannig, og það er kannski svolítið sérstakt að þurfa að árétta það við þingmenn Samfylkingarinnar, að við erum hluti af stórum atvinnumarkaði, mörg hundruð milljóna atvinnumarkaði, þannig að við erum ekki í vandræðum hvað það varðar. En skórinn kreppir að m.a. hvað varðar húsnæði. Það eru fréttir sem borist hafa að húsnæði sé orðið fullt og síðan erum við að sjá það að kostnaður af þessum málaflokki er kominn langt út fyrir það sem gert var ráð fyrir, alla vega hermdu fréttir svo sem fengust á fundi fjárlaganefndar í gær hvað það varðar. Þannig að ég held að menn geti ekkert látið eins og þetta sé einhver ótakmarkaður fjöldi. Auðvitað hljóta að vera einhver mörk á því. Einnig, ef við ætlum að gera þetta vel þá þurfum við að tryggja íslenskuna og að tekið sé af mannúð og sómasamlega við því fólki sem hingað kemur.