útlendingar.
Virðulegur forseti. Hér kemur hv. þingmaður einmitt inn á mikilvæg atriði sem er t.d. þessi þjónustusvipting þar sem þingmönnum stjórnarmeirihlutans virðist einfaldlega ekki bera almennilega saman um hvað þetta þýðir raunverulega. Hér talar talsmaður Sjálfstæðisflokksins í málinu um þetta sem mikla hótun og mjög skýr skilaboð til fólks um að það verði svipt allri þjónustu. Hins vegar kom hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra í pontu þegar greidd voru atkvæði um þetta mál eftir 2. umr. og sagði: Hafið engar áhyggjur. Sveitarfélögin taka þetta skv. 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, þar sem er svo mælt fyrir um að ríkissjóður styðji sveitarfélögin í því.
Hér er einhvern veginn svo augljóst að það er bara verið að auka á flækjustigið í kerfinu með þessu frumvarpi. Hvernig nákvæmlega verður þetta samspil þegar fólk verður svipt þessum rétti? Hvenær, með leyfi forseta, „kikkar“ inn þessi 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga og hvernig verður það útfært? Við höfum ekki fengið nein svör við þessu enda hefur hæstv. félagsmálaráðherra farið huldu höfði í umræðu um þetta mál. Hann er kannski löglega afsakaður núna vegna funda Norðurlandaráðs en ég hef saknað hans í umræðunni um þetta mál, og eins hæstv. barnamálaráðherra. Það er nefnilega algerlega á huldu hvernig framkvæmdin verður raunverulega þegar kemur að þessari þjónustusviptingu og þingmönnum stjórnarmeirihlutans virðist ekki bera saman um það hvernig þessu verður háttað.