útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að varpa ljósi á stöðu Reykjanesbæjar þegar kemur að móttöku og þjónustu við flóttafólk. Auðvitað er þetta þannig verkefni að það gengur ekki að það séu bara örfá sveitarfélög á landinu sem veita þessu fólki þjónustu, það gengur ekki þannig til lengdar. Hv. þingmaður velti því upp hvort það þyrfti þá einhverja meiri miðstýringu að ofan eða einhverja meiri samræmingu, jafnvel að skylda sveitarfélög til að koma með í þetta verkefni. Það kann að vera að á endanum þurfi þess ef stór sveitarfélög taka ekki þátt í verkefninu. En ég held að það sé alla vega alveg ljóst að það sem hv. þingmaður fór yfir hérna rétt í þessu er til marks um ákveðið stefnuleysi og algjöran skort á framtíðarsýn í þessum málaflokki og jafnvel vonda stjórnsýslu í því tilviki sem hv. þingmaður ræddi um.