útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans svar hér. Ég hef bara áhyggjur af sveitarfélaginu mínu af því að við höfum verið öll af vilja gerð. Þannig var það þegar ég sat þarna í bæjarstjórn og þannig er það enn þá. Það er nýbúið að halda mjög flottan fund um málefni fólks á flótta þar sem starfsmenn sveitarfélagsins stóðu sig afburðavel í að skýra hvernig hin raunverulega staða er.
Það sem mér þykir vont er að sveitarfélagið sem sýnir viðleitni til að takast á við vandann skuli svo vera refsað með þessum hætti, það sé hver hola nýtt af því að hún er auð, af því að sveitarfélagið er í þeirri stöðu og það var þarna einu sinni her, þá er bara hrúgað inn fullt af fólki sem þyrfti að vera í miklu betri þjónustu en þarna er verið að veita. Vinnumálastofnun er af vanmætti að reyna að gera þetta, hún fær bara eitthvert verkefni í fangið.
Mér finnst einhvern veginn að við þurfum að ná þessum málaflokki upp á hærra plan, ekki bara að við ræðum hér þetta svokallaða útlendingafrumvarp heldur: Hvernig ætlum við að haga okkur gagnvart fólki sem þarf að leita hingað til landsins? Er það ásættanlegt að sum sveitarfélög segi bara pass, nei, ég ætla ekki að taka þátt í þessu? Hvað með Garðabæ? Hvað með Seltjarnarnes? Hvað með Mosfellsbæ? Hafnarfjörður stendur sig vel, Reykjavík stendur sig vel. Hvað með þessi Kragasveitarfélög? Af hverju eru þau ekki að taka þátt í þessu verkefni sem er svo mikilvægt? Það gengur ekki að ríkisstjórnin sé bara alltaf góð á kostnað annarra. Hún er bara góð á kostnað sumra sveitarfélaga. Það þarf að ná einhvern veginn utan um þennan málaflokk á heildrænan hátt þannig að við séum bæði að bjóða fólk velkomið og veita því þá almennilega þjónustu sem það á svo sannarlega skilið.