útlendingar.
Herra forseti. Nú styttist í að þessari umræðu um útlendingafrumvarpið ljúki og búið að ráðgera að hafa atkvæðagreiðslu um þetta mál á morgun. Hér hafa margir þingmenn reynt að gera sitt til að lagfæra það sem vont er í þessu, og það er ansi margt, en lítið hefur á það verið hlustað. Verra er hins vegar að það hefur lítið verið hlustað á þá umsagnaraðila sem komið hafa til þess að gera athugasemdir við það sem hér er og er að fara aflaga í vinnu þingsins þegar þetta er lagt fram.
Það sem mig langaði að nefna í minni síðustu ræðu um þetta mál er hvernig hæstv. dómsmálaráðherra, og eftir atvikum fleiri ráðherrar og stjórnarþingmenn, hefur verið að koma þeim skilaboðum út til almennings að það sé nauðsynlegt að samþykkja þetta frumvarp vegna þess að hér ríki einhver óstjórn í málaflokknum. Hæstv. dómsmálaráðherra Jón Gunnarsson hefur t.d. talað um að hér séu alls konar seglar í kerfinu sem laði hér að fólk. Ég vitna hér í gamalt fréttaviðtal við hæstv. dómsmálaráðherra þar sem hann er að tala um þá sérkennilegu staðreynd, sem hann nefnir, að fólk sem t.d. kemur frá Venesúela fái svokallaða viðbótarvernd á meðan fólk frá Úkraínu, sem Ísland hefur skuldbundið sig til að aðstoða, fær hana ekki. Íslenska kerfið bjóði einfaldlega betur en önnur ríki þegar kemur að móttöku flóttamanna og skipti þá engu máli hvort um sé að ræða fólk sem er bara hreinlega að leita betri lífskjörum eða þá sem eru að flýja undan stríðsátökum. Hann hefur líka sagt að flæðið sé stjórnlaust og að bregðast þurfi tafarlaust við. Og það er rökstuðningurinn fyrir þessu frumvarpi hér.
Þegar við erum síðan með í fanginu það sem gerðist á opnum fundi allsherjar- og menntamálanefndar í morgun þá sjáum við það auðvitað að þessi hræðsluáróður fyrir því að samþykkja þetta frumvarp gengur ekki upp. Formaður kærunefndar útlendingamála var á opnum fundi hjá nefndinni. Ég ætla að láta liggja á milli hluta hvað það er nú sérkennilegt að hann hafi verið þráspurður af ákveðnum þingmönnum um alls konar hluti sem rökstuddir eru í úrskurðum þessarar sjálfstæðu kærunefndar og gerður ábyrgur fyrir þeim kostnaði sem af úrskurðum nefndarinnar hlýst. Ég ætla að láta það liggja á milli hluta. En það sem þó kom fram almennt á þessum fundi var einmitt það að þetta tiltekna frumvarp sem hér er til umfjöllunar tekur ekki á neinu sem snýr að því fólki sem kemur hingað frá Venesúela, þ.e. staða fólks sem kemur hingað og sækir um vernd frá Venesúela breytist ekki neitt með þessu frumvarpi. Það liggur líka fyrir að það breytist ekki neitt hvað varðar fólkið sem hingað kemur frá Úkraínu.
Ef menn eru á annað borð þeirrar skoðunar að hér sé eitthvert stjórnlaust ástand þá geta menn auðvitað ekki horft fram hjá því að hérna er um að ræða að 80–90% af öllum þeim sem hingað leita. Við getum ekki lagað eitthvert stjórnleysi eða einhverja ósvinnu eða segla í kerfinu með því að beina sjónum okkar bara að þeim litla hluta fólks sem út af stendur. Þetta var nefnilega ansi skýrt á fundinum í morgun. Þetta frumvarp sem hér er til umfjöllunar mun ekki hafa nein áhrif á þá sem hingað koma frá Venesúela og sækja um vernd. Það er með öðrum orðum verið að henda út einhverjum fölskum skilaboðum til almennings, til stuðningsmanna þessara flokka sem á bak við frumvarpið standa, og verið að reyna að selja þeim þá hugmynd að verið sé að koma böndum á eitthvað sem alls ekki er verið að gera. Við erum auðvitað búin að vera að benda á þetta frá því að málið var tekið inn, bæði hér í umræðum í þingsal og svo í allsherjar- og menntamálanefnd. En mér fannst bara svo áhugavert að fá þessa staðfestingu á opnum fundi nefndarinnar í morgun að ég verð hreinlega að halda því til haga núna þegar stutt er í að þetta mál verði tekið til atkvæðagreiðslu hér í þinginu. Við getum einfaldlega ekki látið það óátalið að menn séu með þannig hræðsluáróður að hér þurfi að koma skikki og böndum á einhvern málaflokk þegar 90% af fólkinu sem þar er undir er undanskilið löggjöfinni sem á þá að laga þennan tiltekna vanda, sem er auðvitað ýktur úr öllu hófi.
Ég vil líka gagnrýna það sérstaklega sem ég hef áður gert að það hefur verið talað talsvert um að hluti af þessu fólki sé að misnota kerfið okkar, misnota hælisleitendakerfið. Við erum þráfaldlega búin að óska eftir einhverjum gögnum, tölum, upplýsingum um það. Þær hafa ekki enn litið dagsins ljós. (Forseti hringir.) Þannig að niðurstaðan eftir alla þessa vinnu er einfaldlega sú að Alþingi á ekki að samþykkja þetta frumvarp.