153. löggjafarþing — 80. fundur,  14. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[16:35]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það er ótrúlega skrýtið að það sé talað um einhverja segla eins og það sé allt svo frábært. Það er svo skrýtið að heyra þetta vegna þess að maður sér þetta fólk og talar við þessa einstaklinga sem koma hingað. Þetta er neyð. Þetta er ekki: Það er svo frábært þarna. Það er meira: Við þurfum að komast í skjól, ég þarf að koma barninu mínu skjól, ég þarf að koma fjölskyldunni í skjól. Ég vil búa í mínu landi. Ég vil búa nálægt fólkinu mínu, nálægt menningunni minni og tungumálinu sem ég skil. — En nei, það eru svo miklir seglar hér, við drögum þau bara að okkur. Það er náttúrlega bara ótrúlegt að heyra svona málflutning þegar maður þekkir einstaklinga sem hafa verið í þessari stöðu. Neyðin er svo ótrúleg hjá fólki. Ég vona bara að sem fæst okkar geti nokkurn tímann gert sér grein fyrir hvað þetta fólk er að upplifa eða hvernig það er að vera í þeirra sporum vegna þess að það er náttúrlega mjög erfitt að sjá þessa einstaklinga vera einhvern veginn bara ein, án tungumáls og án alls. Ég vil spyrja hv. þingmann: Hvað er það sem gerir það að verkum að við höldum virkilega að það séu einhvers konar seglar á Íslandi? Getur hv. þingmaður gert sér grein fyrir því? Vegna þess að neyðin er svo mikil að það skiptir ekki máli hvert landið er.