útlendingar.
Forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Já, mér finnst alltaf svo undarlegt að hugsa til þess að það sé eins og það sé bara mjög auðvelt og léttvægt að flytja frá sínu heimalandi. Ég geri mér bara ekki alveg grein fyrir því hvort við séum nægilega góð í að setja okkur í spor annarra, hvort okkur skorti einhvers konar samkennd á þann hátt að við getum sett okkur í spor einhvers sem býr bara á allt öðrum stað í heiminum, í allt öðrum aðstæðum en við. Stundum gerum við það kannski en oft finnst mér það vera eftir hentisemi. Mér finnst að við þyrftum að vera betri í að setja okkur í spor annarra og við eigum að fá fleira fólk sem er á flótta að borðinu. Við þurfum að vera, svona eins og í öllu öðru, aðeins betri í að hlusta á fólkið sjálft og sérstaklega þá mannúðarsamtök sem láta í sér heyra allhressilega, frekar mörg og mismunandi samtök, og sveitarfélög, sem segja okkur að þetta sé ekki nógu gott.
En einhverra hluta vegna er ekki hlustað nægilega vel á sérfræðinga. Ég veit ekki af hverju, mér finnst það bara frekar borðleggjandi að maður hlustar á sérfræðinga í málaflokknum. Þess vegna vildi ég spyrja hvort við ættum mögulega að skoða betur og hlusta betur á sérfræðingana og hvort það sé ekki eitthvað sem hefði þurft að taka mun meira tillit til á fyrri stigum málsins.