útlendingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir þetta. Jú, aldeilis. Þetta er auðvitað ekki eina þingmálið sem við þingmenn erum að fást við. Þau eru auðvitað mörg á hverjum tíma og við eigum öll sæti í einhverjum nefndum og maður hefur tekið á móti mörgum svona málum í þeim nefndum sem ég t.d. er í og þá er alltaf sama ferlið: Það er kallað eftir umsögnum og gestir kallaðir til og annað. Ég man ekki eftir neinu öðru máli þar sem kemur jafn mikið af umsögnum sem allar ber að sama brunni. Þær eru allar gagnrýnar á þetta frumvarp, mjög margar á sömu ákvæðin, en almennt séð eru allir þeir sérfræðingar sem leitað er til, og ég ætla eiginlega nánast bara að undanskilja ráðuneytið sjálft, að benda á að þetta frumvarp er ekki til bóta, það er ósanngjarnt gagnvart því fólki sem hingað leitar og jafnvel eru uppi efasemdir um að þetta standist stjórnarskrá lýðveldisins, sem við höfum auðvitað ekki fengið úr skorið þrátt fyrir ítrekaðar óskir.
Þannig að já, þegar þeir sérfræðingar, sem vinna með þessu fólki sem er í svona viðkvæmri stöðu, þekkja aðbúnað þess, þekkja lagaumhverfið, þekkja væntingar þess, hvaðan það kemur og við hvaða aðstæður það býr, segja allir að lagaumhverfið sem við erum að búa þessu fólki hér sé ómannúðlegt, þá finnst mér það alveg með ólíkindum að við skulum ekki hlusta. Það er svo sem alveg rétt sem hefur komið fram hjá nokkrum stjórnarliðum, að auðvitað er oft gagnrýni á frumvörp í umsögnum en þau fara samt í gegn. En ég man ekki eftir neinu þar sem þetta er allt svona samhljóða og við hlustum ekki og gerum ekkert með það.
Mig langar kannski síðan aðeins að lokum, af því að við erum mikið að tala um Venesúela, að benda á það sem stendur í úrskurði kærunefndar útlendingamála sem svo mikið er talað um:
„Á hinn bóginn er það mat kærunefndar að þegar markvissar aðgerðir stjórnvalda til að bæla niður andstöðu í landinu, alvarlegt efnahagsástand þar sem laun duga ekki til að uppfylla grunnþarfir almennings í landinu, skortur á hreinu drykkjarvatni, há glæpatíðni, skortur á lögregluvernd og algert hrun réttarkerfisins leggjast saman geti aðstæður einstaklinga við endursendingu til Venesúela náð því marki að rétt sé að veita þeim viðbótarvernd hér á landi.“ (Forseti hringir.)
Þetta allt er fólk að tala um, þessar aðstæður, um fólkið sem einhverja efnahagslega flóttamenn. Við verðum að komast út úr þessu. (Forseti hringir.) Við verðum að líta á staðreyndir málsins og verðum að hlusta á þá sem eru einmitt að afhjúpa það að þeir sem þannig tala eru hreinlega að fara með rangt mál.