útlendingar.
Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):
Forseti. Ég held að við séum öll sammála um það hversu mikilvæg mannréttindi eru. Ekkert okkar myndi vilja skerða eigin mannréttindi og ekkert okkar er á þeirri skoðun að það sé eðlilegt eða rétt að ganga gegn jafnrétti. Við myndum öll vilja og við viljum öll halda grundvallarrétti okkar t.d. til að getað leitað réttar okkar fyrir óvilhöllum dómstólum, því að, svo ég vitni í sjálfa stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, með leyfi forseta:
„Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.“
Mér er þetta hugleikið þar sem oft er spurt í umræðunni um mannréttindi: Mannréttindi hverra? En málið er það að mannréttindi eru allra. Mannréttindi eru grundvallarréttindi alls fólks. Það þýðir ekki eingöngu það að við eigum að hafa samkennd með öðru fólki og annað slíkt, það þýðir að þegar mannréttindi eru brotin þá eru þau brotin og ef við látum það óátalið er það fordæmi. Það setur fordæmi fyrir frekari mannréttindabrot vegna þess að mannréttindi eru öll þau sömu, alveg sama um hvern ræðir. Þannig að ef það er viðurkennt að það sé leyfilegt að svipta fólk t.d. réttinum til þess að leita réttar síns þá á það við um alla sem njóta þess réttar ef það er látið óátalið.
Til hvers er stjórnarskráin? Við erum alltaf að tala um stjórnarskrána. Ég held að margir átti sig hreinlega ekki á því hvað hvaða merkingu það hefur og hvað það þýðir og til hvers og hvað það kemur þessu máli yfir höfuð við. Stjórnarskráin hefur að geyma helstu meginreglur um stjórnskipulag ríkis í fyrsta lagi. En, já, þar er að jafnaði að finna ákvæði um meðferð ríkisvalds, hlutverk handhafa ríkisvaldsins, sem jafnan skipt í þrennt; þ.e. löggjafinn sem setur reglurnar, framkvæmdarvaldið sem framkvæmir reglurnar samkvæmt reglunum og dómsvaldið sem dæmir þegar upp kemur ágreiningur. Í stjórnarskránni eru líka ýmis ákvæði um grundvallarréttindi borgaranna í samskiptum við ríkisvaldið og hömlur sem lagðar eru á það að á þessi réttindi sé gengið. Þetta er ástæðan fyrir því að við erum alltaf að tala um stjórnarskrána. Þrátt fyrir að við séum með þessa stjórnarskrá — mannréttindakafli hennar er reyndar svo sem ágætur. Þó að það sé fyrir löngu orðið brýnt að endurskoða stjórnarskrá okkar þá stendur hún fyrir sínu að mörgu leyti og kannski ekki síst þegar kemur að því að tryggja mannréttindi okkar, mannréttindi allra. Samt hefur það gerst ítrekað á undanförnum árum að gengið er á mannréttindi fólks. Mannréttindi hverra? Mannréttindi. Punktur.
Ráðherrar hafa verið fundnir sekir um brot á jafnréttislögum. Pólitísk skipan dómara hefur valdið því að heilt nýtt dómstig, sem var sett upp hérna til þess að styrkja réttarvernd okkar, hefur verið í uppnámi í mörg ár. Hvernig getur þetta gerst? Jú, því að ráðherrar og þingmenn eru fólk og ekkert okkar er fullkomið. Það er hvorki ásökun né afsökun heldur einfaldlega staðreynd, staðreynd sem ætti að hvetja okkur til að gera betur í dag en í gær.
Ég vil því ítreka það sem ég hef sagt hérna áður: Við eigum að vera að spyrja okkur þeirrar stóru spurningar í þessu máli og öðrum: Erum við að taka skref áfram eða erum við að taka skref aftur á bak? Eins og ég sagði áðan er oft, margoft spurt: Mannréttindi hverra? þegar við tölum um mannréttindi. En mannréttindi eru réttindi alls fólks. Skerðingar á mannréttindum eins hóps eru skerðingar á mannréttindum alls fólks, ekki eingöngu vegna einhverrar mannlegrar samkenndar sem við ættum að hafa með öðru fólki, heldur líka einfaldlega af lögfræðilegum ástæðum.
Hér erum við að ræða mál sem aðilar sem hafa sérþekkingu á mannréttindum hafa lýst þungum áhyggjum af, hreinlega allt batteríið á Íslandi, held ég, sem hefur sérþekkingu á mannréttindum meira og minna. Í hverju felst sérþekking þeirra? Jú, það er sérþekking á heimilum inngripum í mannréttindi okkar, því að slík inngrip eru heimil að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, en einungis að þeim uppfylltum. Eru þau skilyrði sem eru fyrir inngripum í mannréttindi fólks uppfyllt í þessu máli? Eru inngrip í mannréttindi fólks sem lögfesta á með þessu frumvarpi innan marka? Það þykjast flutningsmenn frumvarpsins geta fullyrt án þess að nein skoðun hafi farið fram á því. Vandinn er sá að mannréttindi eru ekki bara eitthvað sem mér finnst eða sem hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur finnst eða öðrum. Við getum verið sammála. Við getum verið ósammála um hitt og þetta. Mér getur þótt eitthvað ósanngjarnt, eðlilegt og henni gæti þótt það og öðrum. Mannréttindi eru lagaleg réttindi fólks, lagaleg réttindi alls fólks. Þau eru ekki bara lögfest hér á landi líkt og í öðrum lýðræðisríkjum heldur er kveðið á um þau í stjórnarskrá, líkt og ég sagði. Mat á því hvort lagaákvæði eða ákvörðun stjórnvalds standist mannréttindareglur og þar með stjórnarskrá er lögfræðilegt. Í flestum lýðræðisríkjum, og sannarlega í þeim ríkjum sem við viljum helst bera okkur saman við, eru sérstakir stjórnskipunardómstólar eða aðrir sjálfstæðir fagaðilar sem ætlað er að tryggja það að ekki sé sett löggjöf í landinu sem stríðir gegn stjórnarskrá landsins, þar með talið þeim mannréttindum sem iðulega eru áréttuð þar. Þetta er almennt tryggt áður en frumvarp verður að lögum. Í mörgum ríkjum geta þingmenn eða aðrir borið frumvarp til laga undir slíkan dómstól, telji þeir einhvern vafa leika á um það hvort tillagan standist stjórnarskrá landsins. Nú bið ég áhorfendur og áheyrendur um að hlusta vel: Á Íslandi er ekkert slíkt ferli. Það er enginn slíkur dómstóll, það er engin slík nefnd. Ekkert. Á Íslandi er enginn öryggisventill áður en frumvarp verður að lögum heldur fer matið á því hvort lög standist stjórnarskrá fram eftir á. Eftir hvað? Ekki bara eftir að lögin hafa verið samþykkt, ekki bara eftir að þau hafa verið birt og tekið gildi sem lög í landinu sem binda hendur borgaranna, jafnvel að viðlagðri refsiábyrgð. Nei, á Íslandi fer matið á því hvort lög standist stjórnarskrá ekki fram fyrr en eftir að þeim hefur verið beitt gegn einstaklingi, eftir að á honum hefur verið brotið og hann hefur leitað til dómstóla til að fá brotið viðurkennt. En er það þá nokkurt vandamál? Þá samþykkjum við einhver lög og fólk fer bara fyrir dómstóla ef það telur á sér brotið. Vandinn hér er sá að þeir einstaklingar sem hér stefnir í að verði brotið á, ef marka má umsagnir þeirra sérfróðu aðila um mannréttindi sem gefið hafa umsögn um málið, hafa takmarkaða möguleika á því að leita réttar síns. Ekki nóg með að þessir einstaklingar sem lög þessi gilda um eigi nú þegar mun takmarkaðri möguleika á gjafsókn en aðrir og hafa að jafnaði enga fjárhagslega burði til að ráða sér lögmann þar sem þeir mega ekki einu sinni vinna fyrir sér, heldur eiga þessir einstaklingar yfir höfði sér að vera fluttir úr landi áður en þeir ná að bera hönd fyrir höfuð sér, áður en þeir geta nýtt eina úrræðið sem okkar réttarkerfi býður upp á til að skera úr um það hvort lög og ákvarðanir stjórnvalda standist stjórnarskrá, lög um mannréttindi.
Það sem ég er að reyna að vekja athygli á, herra forseti, og ég óttast að fólk átti sig ekki á þessu í einhverjum tilfellum einfaldlega vegna þess að þau trúa því ekki þegar þau heyra það, er að það er ekkert sem tryggir það að lög sem samþykkt eru hér á hinu háa Alþingi standist stjórnarskrá áður en þau eru samþykkt annað en við sjálf. Og hvernig gerum við það? Ekki með því að horfa á ákvæðin, leggja fingur á höku og velta fyrir okkur hvað okkur finnst sanngjarnt. Mat á því hvort lög standist stjórnarskrá, mannréttindi krefst þess að farið sé yfir orðalag ákvæðisins og afleiðingarnar af því í framkvæmd metnar og bornar saman við skilyrðin sem eru fyrir því að gripið sé inn í mannréttindi án þess að það teljist mannréttindabrot.
Mannréttindastofnun Háskóla Íslands er óháð fræðastofnun sem sérhæfir sig í nákvæmlega þessu. Hún er ekki skipuð pólitíkusum líkt og Alþingi. Hún samanstendur ekki af einhverjum aktívistum og anarkistum sem vilja opna landamærin og leggja niður lögregluna. Nei, hún er skipuð okkar fremstu laganördum, fræðimönnum sem taka starf sitt alvarlega og sem tileinkað hafa starfsferil sinn rannsóknum og pælingum í lagalegri beitingu mannréttindalaga, stjórnskipunarlaga.
Við, sem höfum áhyggjur af því að ákvæði frumvarps þess sem við hér ræðum uppfylli ekki skilyrðin sem inngrip í mannréttindi fólks þurfa að uppfylla til að standast stjórnarskrá og mannréttindasamninga, fórum náðarsamlegast fram á það að Mannréttindastofnun Háskóla Íslands yrði falið að gera úttekt á frumvarpinu og ganga úr skugga um að það stæðist stjórnarskrá. Þetta var lágmarkskrafa sem var gerð eftir að ljóst var orðið að um þetta mál hafði verið samið á meðal ríkisstjórnarflokkanna. Verð ég að játa hér einu sinni enn að það kom mér á óvart, einföld sem ég er, að meiri hlutinn skyldi ekki verða við þessari eðlilegu bón. Ástæðan fyrir því getur eingöngu verið ein, hún getur ekki verið nein önnur en sú að meiri hlutanum sé einfaldlega sama hvort verið sé að brjóta á fólki eða ekki, því að ef þau væru raunverulega svo sannfærð um að engin hætta væri á því í þessu frumvarpi og allir umsagnaraðilar séu að hafa áhyggjur að óþörfu, líkt og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir hefur ítrekað sagt hér í pontu, og að um pólitíska pílu sé að ræða þá hefðu þau getað fallist á þessa kröfu. Þau hefðu getað gert það fyrir jól, í nóvember. Þetta var eina krafan okkar frá því að þetta frumvarp kom á dagskrá fyrir jól, ég endurtek: eina. Þau hefðu getað fallist á það, fengið álit mannréttindastofnunarinnar, þann gæðastimpil á þetta frumvarp sem hefði ekki eingöngu linað áhyggjur umsagnaraðila heldur slegið öll vopn úr höndunum á stjórnarandstöðunni í þessu máli, pílur og annað, því að þetta var það eina sem við fórum fram á. En þau gerðu það ekki.
Fyrir liggur að þetta frumvarp verður samþykkt hér á þessu þingi án þess að búið sé að ganga úr skugga um að það standist stjórnarskrá. Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir er sannfærð um það. Ég er ekki sannfærð um það. 17 umsagnaraðilar sem hafa sérþekkingu á mannréttindum eru ekki sannfærðir um það. Þetta er að fara að verða að landslögum hér á landi, ég bið fólk um að melta það aðeins. Munum við á morgun enn vera jöfn fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til þjóðernis, litarháttar? Það er ekki víst ef marka má umsagnir aðila á borð við Barnaheill, landlækni, Hafnarfjarðarbæ, Íslandsdeild Amnesty International, Kvenréttindafélag Íslands, Þroskahjálp, Læknafélag Íslands, Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar, Mannréttindaskrifstofu Íslands, Mannréttindastofnun Háskóla Íslands, presta innflytjenda og flóttafólks, Samtökin '78, Rauða krossinn á Íslandi og UNICEF. Þetta eru aðilar sem við tökum alla jafna mark á, aðilar sem við hlustum á, samtök sem hæstv. forsætisráðherra Íslands telur rétt að hlusta á, en það virðist ekki vera þörf á því í þessu tilfelli.
En ókei. Hér segja margir, sem finnst kannski nóg um allt þetta mannréttindatal: Eitthvað þurfum við að gera, eitthvað þurfum við að gera til að bregðast við þeim vanda sem mörgum finnst við standa frammi fyrir vegna fólks á flótta í heiminum. Vitanlega er sá vandi fyrst og fremst fólksins þar sem það óskar enginn sér þess að vera hrakinn burt frá sínum heimaslóðum. Það sem gerir þessi mannréttindabrot enn svívirðilegri er að frumvarp þetta leysir engan vanda. Hver er vandinn? Að mati þingmanna sem hafa farið stórum orðum um það og hæstv. ráðherra þá er vandinn sá hversu margir koma hingað. Það kemur hingað svo mikið af fólki, við ráðum ekki við þetta, við ráðum ekki við þennan fjölda. Þau vita hins vegar sem er að þetta frumvarp hefur engin áhrif á það hversu margir einstaklingar koma hingað til lands og leita verndar. Ég er ekki sammála því að fjöldinn sé vandamál en jafnvel þótt hann væri vandamál þá er þetta frumvarp ekki fara að leysa það. Þetta frumvarp er að fara að auka álag á stjórnsýsluna. Það er að fara að skapa fleiri vandamál sem við ættum að vera að leysa, vandann sem t.d. fylgir því að fólk fær synjun hér og ekki er hægt að flytja það úr landi. Það er verið að auka það vandamál. Ég hef farið um það mörgum orðum hér í þessari pontu.
Ég ætla að ljúka þessari ræðu minni á akkúrat þessum orðum: Við erum ekki eingöngu að hugsanlega samþykkja hérna lög sem stríða gegn stjórnarskrá landsins heldur erum við að gera það algerlega að óþörfu.