153. löggjafarþing — 80. fundur,  14. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[17:01]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Málið snýst um mannréttindi. Svo einfalt er það. Og þegar svona margir umsagnaraðilar vara okkur við því að frumvarpið sé að brjóta gegn mannréttindum fólks, stjórnarskrá, alþjóðasáttmálum, þá verðum við að hlusta. En þegar spurt er: Er þetta ekki vandamál? eru svörin einhverra hluta vegna ekki málefnaleg. Svo einfalt er það. Það er skotið á okkur um að við viljum bara opna meira, við viljum hafa „open borders“. Nei, við viljum tryggja að mannréttindum sé sinnt. Það er það eina sem við biðjum um. Þess vegna vildum við, eins og hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir fór yfir hérna áðan, fá lögfræðimat á því hvort að þetta frumvarp stæðist stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar á borð við flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, sem dómsmálaráðherra kallaði fallegasta samning sem hann vissi um. Hann orðaði það þannig áðan og notaði orðin „fallegasti samningur“. Ef virðingin gagnvart þeim samningi er í alvörunni þannig þá hlýtur ráðherra að vilja vita hvort frumvarpið brjóti gegn þeim samningi eða ekki, því að í frumvarpinu sem hann lagði fram á þingi kom það fram að það þyrfti ekki að gera slíkt mat. En svo koma allir þessir umsagnaraðilar, Amnesty International, Mannréttindaskrifstofa Íslands og Mannréttindastofnun Háskóla Íslands, Rauði krossinn á Íslandi, og segja: Nei, fyrirgefið, þetta er mjög varhugavert. Og segja bara: Umtalsverð réttindaskerðing. Menn tala t.d. um greinina um sjálfkrafa kæru, þeir tala um 8. gr., að hvorki sé vísað til ákvæða stjórnarskrárinnar né mannréttindasáttmála Evrópu. Efni frumvarpsins varðar með augljósum hætti mannréttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd.

Þrátt fyrir að dómsmálaráðherra telji flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna fallegasta samninginn í heimi, en telur samt enga þörf á að skoða hvort frumvarpið standist stjórnarskrá eða alþjóðasamninga, þá hafnar meiri hlutinn þessari einföldu beiðni um óháð lögfræðiálit. Ef eitthvað í þessu máli ætti að sýna okkur hversu ómálefnalega meiri hlutinn hefur unnið í þessu máli þá er það bara nákvæmlega þetta. Það er svo augljóst að þetta er ómálefnaleg höfnun á því að vinna gæðavinnu hérna á Alþingi. Það er augljóst. Í staðinn koma „rök“, innan risastóra gæsalappa, að þetta sé í fimmta sinn sem málið sé lagt fram á þingi, eins og það sé einhver gæðastimpill á það og að málið verði betra í annað, þriðja, fjórða, fimmta, sjötta skipti o.s.frv. Eiga þessi rök þá ekki við um öll önnur mál sem búið er að leggja fram á þingi? Sum þingmannamál er búið að leggja fram oftar en tíu sinnum. Eigum við þá ekki bara að vera búin að klára þau, það er búið að leggja þau svo oft fram? Við þurfum bara að renna þeim í gegn, einn, tveir og bingó. Það er augljóst að það eru ekki rök fyrir málinu að það sé búið að leggja það svo oft fram. Við þurfum að skoða það efnislega, það á ekki bara að vera einhver baunatalning á því hversu oft er búið að leggja málið fram.

Síðan er talað um hversu slæmt það sé að vera með þessi séríslensku ákvæði, 12 mánaða regluna, til að taka upp efnislega meðferð, þ.e. að ef ekki er komin niðurstaða í umsókn, stjórnsýslan er ekki búin að klára ferlið innan 12 mánaða, þá öðlast viðkomandi rétt til efnismeðferðar, sem gerir málið aðeins stærra og þá þarf að fara ítarlegar í það hvort umsóknin sé rétt eða ekki. Þessi séríslenska regla var sett árið 2016 í samvinnu allra flokka sem þá sátu á þingi til þess einmitt að reyna að búa til skilvirkari stjórnsýslu, af því að stjórnsýslan á Íslandi var búin að drattast með þessi mál í marga mánuði og mörg ár án þess að skila niðurstöðu, sem enginn vildi. Það vildi enginn hafa fyrirkomulagið þannig að það væru bara einhver áragömul mál í kerfinu sem engin niðurstaða fengist í. Þess vegna var sett þetta séríslenska ákvæði til stjórnsýslunnar hérna á Íslandi sem segir: Vinsamlegast klárið málin ykkar sem fyrst. Því að ég hef aldrei heyrt neinn segja annað neitt annað en það að allir vilji fá niðurstöðu í þessi mál sem fyrst. Það hefur enginn sagt: Heyrðu, ég vil tefja málareksturinn í þessu í stjórnsýslunni. Þess vegna er þessi séríslenska regla sett; til að skikka stjórnsýsluna til að vinna hraðar og vinna betur, vinna skilvirkar. Þetta er kölluð einhver séríslensk íslensk regla sem er með einhverja segla eða eitthvað. Þessi málflutningur gengur ekki upp, ekki þegar það er skoðað efnislega hvað er þar á bak við.

Síðan koma ýmsir þingmenn upp og tala um að við höfum ekki pláss, við séum nú bara lítil þjóð og alls konar svoleiðis. Sko, mér finnst þetta rosalega áhugaverður málflutningur því að í fljótu bragði þá hljómar hann mjög rökréttur. Það eru bara ákveðið mörg hús hérna og ákveðið mikið pláss í skólum og í heilbrigðiskerfinu o.s.frv., en að sjálfsögðu hefur fólki verið að fjölga á hverju ári á undanförnum árum og fleiri hendur vinna fleiri verk til að byggja þá fleiri hús og fleiri skóla o.s.frv. En vissulega er erfitt að bæta við rosalega mörgum í einu. Við verðum að viðurkenna að það er þannig. Þess vegna hljómar það mjög rökrétt að það sé takmarkað pláss hérna. Það hljómar þannig. En vandinn er að praktískt séð er það ekki þannig og nú þarf ég að útskýra það aðeins betur. Þetta er mannréttindamál, alveg nákvæmlega eins og heilbrigðisþjónusta er skilgreind sem borgararéttindi, mannréttindi. Þegar við verðum veik höfum við rétt á að fá heilbrigðisþjónustu. Þá mætum við niður á bráðaþjónustu heilsugæslunnar eða á þann stað sem kemur til með að aðstoða okkur. Það skiptir ekki máli hversu margir mæta. Þegar það er heimsfaraldur þá mæta allir í bráðaþjónustuna. Og það er vissulega virkilega erfitt að taka á móti öllum þegar allt í einu brýst út heimsfaraldur en það er samt gert. Plássleysinu er reddað. Og jú, ef faraldurinn hefði verið enn þá meiri hefði það orðið enn þá erfiðara en því hefði samt verið reddað. Það hefði verið erfitt, en af því að fólk hefur rétt á því þá hefði því verið reddað.

Það er það sama og við glímum við hérna. Flóttamannasamningurinn, mannréttindin sem fylgja þeim lögum sem við höfum sett vegna flóttamannasamningsins í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar, kveður á um að þetta er í raun og veru bráðaþjónusta. Fólk er í bráðri neyð og kerfið eins og það er sett upp hérna hjá okkur er mjög strangt á það að meta hvort fólk er í bráðri neyð eða ekki, alveg eins og í rauninni neyðarþjónustan á heilsugæslunni eða á Landspítalanum. Ef fólk er ekki í bráðri neyð þá er því vísað annað. Ef þetta eru efnahagslegir flóttamenn þá er þeim vísað annað. Staðan er þannig í dag. Það er bara tekið á móti þeim sem eru í bráðri neyð. Þess vegna er umræðan um það hvort það sé pláss eða ekki, pínulítið á villigötum. Það er verið að villa okkur sýn gagnvart því að það sé einhvers konar fjöldatakmörkun sem hægt sé að setja á slíkt. Myndum við gera það í heimsfaraldri eins og Covid? Myndum við bara segja: Nei, það komast bara 100 manns á gjörgæsluna. Það komast að vísu ekki einu sinni svo margir eins og er. Eða: Það komast bara 200 á bráðamóttökuna, hvernig sem það er. Nei, auðvitað ekki. Við reddum því. Kannski er það hluti af óttanum, ég held að við ættum að tala bara heiðarlega um það. Kannski er það hluti af óttanum ef við myndum í alvörunni taka á móti þeim sem eru í bráðri neyð og hugsa bara að það sé jú rétt samkvæmt öllum þessum skilyrðum sem við erum búin að setja, sem eru ansi þröng, og segja: Gjörðu svo vel, þú færð pláss á bráðamóttökunni, bráðamóttöku vegna heilsugæslu, bráðamóttöku vegna flótta úr hörmulegum aðstæðum. Er hræðslan sú að það muni leiða til þess að allir aðrir sem eru í neyð og jafnvel ekki í neyð komi þá líka hingað og reyni að fá sömu þjónustu? Ég er ekki viss um að reynslan sé alveg á þann veginn. Það er vissulega ákveðið ástand í Úkraínu og Venesúela og einhverra hluta vegna koma fleiri hingað frá Venesúela en fara t.d. til Noregs. En landfræðileg lega Íslands er líka þáttur í þessu miðað við flug frá t.d. Bandaríkjunum, það gæti útskýrt það að einhverju leyti. á Við erum bara einfaldlega ekki með upplýsingar um það af hverju eitt og annað er svona í þessu, af hverju þau velja koma hingað frekar en að fara eitthvert annað. Og kannski er það á einhverjum röngum forsendum.

Hérna áður í umræðunni var vitnað í það að verið væri að auglýsa Ísland sem land sem hægt væri að sækja um hæli í. En þegar nánar er skoðað auglýsir nákvæmlega sama ferðaskrifstofa líka Spán, Þýskaland, Noreg og fleiri lönd sem sams konar staði. Og meira að segja á síðunni þar sem þau vorum með þessa auglýsingu, eða þessa frétt eða hvað sem þetta er fyrir þessa ferðaskrifstofu, þá er Ísland ekki efst á þeim lista. Það er ekki einu sinni inni á þeirri síðu í röðuninni yfir þau lönd sem helst ætti að fara til.

Við erum að glíma við það að dómsmálaráðuneytið kemur með frumvarp inn til þingsins um réttindi flóttafólks, réttindi sem flóttafólk fær samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um flóttamenn. Dómsmálaráðherra segir þetta hin fallegasta samning sem til er en að frumvarpið sé þannig úr garði gert að ekki þurfi að meta áhrif þess á réttindi fólks samkvæmt flóttamannasamningnum eða stjórnarskránni, sem hefur innleitt í rauninni þau mannréttindi sem flóttamannasamningurinn kveður á um. Í kjölfarið koma umsagnir frá helstu mannréttindasamtökum Íslands sem segja: Jú víst. Þá segjum við: Heyrðu, gætum við þá fengið óháð lögfræðiálit fyrst það er einhver ágreiningur um það hvort þetta frumvarp standist stjórnarskrá eða ekki? Þá segir meiri hlutinn á Alþingi: Nei. Við reynum að spyrja: Af hverju ekki? Þau svara: Við fengum ráðuneytið hingað inn og það sagði að þetta væri allt í lagi. Þetta var sama ráðuneytið og sagði áður að það þyrfti ekki einu sinni að skoða hvort frumvarpið stæðist stjórnarskrá eða ekki. Og við eigum bara að treysta því. Það er svo rosalega sniðugt, því að dæmin sem við höfum, eins og það að Útlendingastofnun hefur ekki framfylgt þeim lögum sem við erum með nú þegar, eru ekkert svo rosalega góð um það hvort treysta eigi því hvernig framkvæmdin er þarna. Þar liggur, held ég, kjarni vandans þegar allt kemur til alls, að það er skortur á trausti gagnvart þessum stjórnvöldum að framfylgja núverandi lögum og hvað þá þessum lögum ef þau verða samþykkt. Við vitum í rauninni ekkert hvaða breytingar þessi lög koma til með að hafa í för með sér nema við vitum að það er ekki það sem er sagt í frumvarpinu, svo mikið er augljóst. En hvað verður það þá? Það er eitthvað sem enginn hefur fengist til að segja upphátt.