útlendingar.
Forseti. Í þessu frumvarpi er verið að ræða um að svipta umsækjendur um alþjóðlega vernd þjónustu, meðal margra annarra þátta. En það er svolítið undarlegt að standa hérna og ræða um umrætt útlendingafrumvarp í 3. umr. án þess að búið sé að tryggja að hér sé ekki verið að brjóta á mannréttindum fólks og sér í lagi stjórnarskrá. Ég er persónulega ekki einhver sérfræðingur í málefnum útlendinga og ég held að flestir aðrir hv. þingmenn í þessum sal séu það nú ekki heldur. Því finnst mér mjög mikilvægt að hlusta vel á sérfræðinga í þessum málaflokki og miklu betur en við erum greinilega að gera.
Umsagnir í málum sem þessum, í öllum málum að vísu en sérstaklega í málum eins og þessum sem fjalla um fólk og mannréttindi fólks, skipta bara öllu máli. Umsagnir skipta öllu máli. Það á að vera svo. Við erum að sækjast eftir því að fá umsagnir vegna þess að við ætlum að vinna vinnunna vel, við ætlum að passa upp á það að við séum að gera þetta bara rosalega vel og við séum að fá umsagnir og við séum að taka tillit til þeirra. Og þegar við erum að breyta einhverju eins og á að breyta hér að þá er svo mikilvægt að það sé alla vega einhvers konar sátt. En það er svo greinilegt að svo er ekki og það er undarlegt að fylgjast með því hvað það eru ótrúlega margir umsagnaraðilar sem koma úr mismunandi áttum og eru með mismunandi áherslur í sínum umsögnum en þeir eru samt oft mjög sammála þrátt fyrir að vera með svona mismunandi bakgrunn eða svoleiðis. Þannig að það er svo ótrúlega mikilvægt að við tökum þessu ekki létt, að við hlustum á sérfræðinga, því að til hvers erum við að þessu ef við ætlum ekki að hlusta, ef við ætlum ekki að taka því alvarlega þegar ótrúlega mörg mannréttindasamtök og fleiri hafa áhyggjur af frumvarpinu?
Umsagnir sérfræðinga eru alls konar og sérfræðingarnir eru á mismunandi sviðum. Ég ætla að telja upp nokkra umsagnaraðila, mér finnst það bara ótrúlega mikilvægt. Ég get eiginlega ekki sagt það nógu oft hvað mér finnst það skipta miklu máli. Það er Rauði krossinn á Íslandi. Það er Íslandsdeild Amnesty International. Það eru Barnaheill, embætti landlæknis, Kvenréttindafélag Íslands, Þroskahjálp, Læknafélag Íslands, Mannréttindastofnun Háskóla Íslands, prestar innflytjenda og flóttafólks, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtökin '78, Solaris, UNICEF og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og fleiri.
Mig langar að hvetja alla sem eru að hlusta og hafa áhuga og vilja kynna sér þetta, til að kynna sér einkum umsagnir sem hafa borist um þetta mál vegna þess að þær segja oft svo ótrúlega mikið. Það er í raun og veru þær sem eiga að hafa hvað mesta vægið varðandi svona mikilvægt málefni eins og þetta eða alla vega þannig að þessir aðilar, eins og þeir eru margir — að það sé komið til móts við það sem þeir segja. En það er ekki svo.
Hérna eru ýmsar tillögur að lagabreytingum sem eiga að fara í gegn í skjóli þess að verið sé að gera kerfið skilvirkara og betra, betra fyrir flóttamenn, betra fyrir alla einhvern veginn. En það er bara ekki svo. Þetta mun ekkert spara einhverja peninga eða gera þetta betra fyrir flóttamenn á einhvern hátt. Það er ekkert endilega skoðun mín eða annarra, það er bara það sem maður hefur séð í umsögnum og fleira, eftir að hafa kynnt mér þetta mjög ítarlega þá finnst mér það bara greinilegt.
Það eru ýmis atriði sem rætt er um í umræddu frumvarpi. Mig langar að byrja á því að tala aðeins um bráðaheilbrigðisþjónustu. Auðvitað fá allir bráðaheilbrigðisþjónustu sem eru hér á landi. En erum við sem sagt að tala um fólk sem er bara mjög veikt, blæðandi út úti á götu? Er það bráðaheilbrigðisþjónusta eða erum við að tala t.d. um fólk sem fer í geðrof? Fyrir mér þá þyrftir þú bráðaheilbrigðisþjónustu ef þú færir í geðrof. Er það skilgreint sem svo? Er geðheilbrigðisþjónusta inni í bráðaheilbrigðisþjónustu? Það á bara einhvern veginn að vera metið hverju sinni og ekki talað um, að mér sýndist, geðheilbrigðisþjónustu sérstaklega í þessu samhengi. Mér þykir það mjög alvarlegt og mér þykir líka skrýtið að það sé ekki svo, með þá vitneskju sem við höfum í dag um einstaklinga sem eru á flótta og hvernig öll áföll sem þau hafa mögulega gengið í gegnum og hvaða áhrif allt þetta sem við erum að tala um hérna getur haft á einstaklinga. Óttinn við heimilisleysi, óttinn við að eiga ekki í sig og á, fyrir fjölskylduna sína, að geta ekki sameinast maka sínum og ýmislegt annað. Ég held að við séum oft ekki alveg að gera okkur grein fyrir því hvaða andleg áhrif þetta getur haft á fólk. Við erum heldur ekkert endilega að taka því mjög alvarlega, alla vega sá ég ekki að það hafi verið eitthvað hugað að því hvaða áhrif eða afleiðingar það gæti haft í för með sér að fólki sé neitað um þjónustu, upplifi að það verði heimilislaust og fleira. Mér finnst að þurfi að hugsa mun meira út í það vegna þess að þetta eru einstaklingar og börn sem koma oft úr hræðilegum aðstæðum og hlutir eins og þessir geta bara haft mjög alvarleg áhrif á andlegt líf þessa fólks.
Einnig er í þessu frumvarpi verið að ræða um að svipta umsækjendur um alþjóðlega vernd þjónustu og svoleiðis. Þá hugsar maður: Ókei, bíddu nú við, fá þau enga þjónustu? Jú, bíddu, svo segir hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra hér í atkvæðagreiðslu í 2. umr., að jú, jú, þau fái þjónustu en það sé bara félagsþjónusta skv. 15. gr. félagsþjónustu sveitarfélaga. Það er það sem grípur þessa einstaklinga.
Ég ætla að lesa hérna 15. gr. um félagsþjónustu sveitarfélaga, með leyfi forseta:
„[Erlendum ríkisborgurum sem ekki eiga lögheimili í landinu skal í sérstökum tilvikum veitt fjárhagsaðstoð hér á landi. Aðstoð skal veitt af dvalarsveitarfélagi að höfðu samráði við [ráðuneytið], enda hafi áður verið leitað eftir aðstoð frá heimalandi. [Ráðherra] er heimilt að setja nánari reglur um aðstoð samkvæmt ákvæði þessu. Ríkissjóður skal endurgreiða sveitarfélagi veitta aðstoð vegna erlendra ríkisborgara í eftirfarandi tilvikum:
a. Aðstoð við erlenda ríkisborgara sem ekki eiga lögheimili í landinu, sbr. 1. mgr.
b. Aðstoð við erlenda ríkisborgara skv. 12.–13. gr. laganna sem átt hafa lögheimili í landinu skemur en tvö ár.].“
Þannig að um við ætlum sem sagt að svipta þau þjónustu eftir 30 daga, segja að sveitarfélögin eigi að þjónusta þau og láta ríkissjóð svo endurgreiða sveitarfélögunum. Vá, þetta er rosalega skilvirkt og flott. Þetta er ekkert ruglingslegt. Það er ótrúlegt að þetta eigi að vera eitthvað skilvirkara og betra. Þetta er bara ruglingslegt. Þetta er ekki til bóta fyrir neinn. Sveitarfélögin hafa kannski ekkert endilega komið að þessu. En maður hugsar bara: Bíddu, hvað erum við í raun og veru að gera? Ég skil það einhvern veginn ekki, ég held að einhver þyrfti kannski að útskýra það betur fyrir mér, en ég skil ekki alveg nákvæmlega af hverju við förum í þetta limbó. Af hverju erum við að gera það? Fyrir hvern? Ekki er það fyrir fólkið sem við erum að þjónusta — eða ekki þjónusta.
Já, þetta er svo ótrúlega sorgleg þróun einhvern veginn að við séum að fara til baka, upplifir maður. Að mannúðin sé ekki að aukast, vegna þess að við erum að verða þróaðri og fjölmenningarþjóðfélag og allt þetta. Nei, nei, það er eins og mannúðin sé að minnka einhvern veginn, að við séum að draga í land, við séum svo hrædd um að hvað? Allir vilji vera á Íslandi? Það er bara ekkert svo. Fólk vill vera heima hjá sér. Fólk vill eiga heima hjá sér ef það getur, í sínu heimalandi, eins og flestir Íslendingar kjósa að búa á Íslandi. Margir flytja til útlanda en flestir kjósa að vera heima hjá sér og vilja það. Þannig að það að við séum að draga að okkur fólk og annað á náttúrlega bara við engin rök að styðjast, sérstaklega ekki í þessum málaflokki. Þetta er fólk í neyð. Tökum dæmi um fylgdarlaust barn. Á hvaða tímapunkti, ef fólk getur sett sig í þessi spor, myndi maður senda barnið sitt eitt til annars lands þar sem það þekkir engan, talar ekki tungumálið, þú veist ekkert hvað verður um þetta barn, velferð þess. Þetta er barnið þitt. Á hvaða tímapunkti myndi fólk gera þetta? Þegar það er í neyð og það er ekkert annað í boði. Það er engin önnur lausn. Við eigum bara að hætta að tala um þetta þannig að fólk vilji koma hingað og að fólk sé ekki að gera þetta í neyð.