153. löggjafarþing — 80. fundur,  14. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[17:42]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):

Herra forseti. Ég ætla að gera heiðarlega tilraun til að klára punktana mína á þessum fimm mínútum sem ég á eftir, þar sem hér margir eru farnir heim og áhuginn á umræðunni er greinilega að minnka. Hér verður hins vegar atkvæðagreiðsla um málið á morgun og þá mun gefast tækifæri fyrir fólk til þess að skýra afstöðu sína til einstakra ákvæða frumvarpsins.

Eins og ég var að segja í minni fyrri ræðu þá munu tilteknar breytingar í þessu frumvarpi beinlínis minnka skilvirkni kerfisins, ekki bara ekki auka hana heldur minnka hana með því að búa til flóknar sérreglur og undantekningar á ágætu regluverki sem samið hefur verið af þverpólitískri nefnd á sínum tíma. Kostnaðurinn við málsmeðferð mun aukast fyrir vikið, augljóslega, þar sem helsti kostnaðurinn í þessu kerfi er akkúrat það hvað stjórnsýslumeðferð er að taka langan tíma og hvað hún er flókin. Það er bara ekki verið að gera neitt í þessu frumvarpi til að leysa þann vanda, bara ekki neitt. Hvað er þá verið að gera? Hvers vegna er verið að gera þessar breytingar? Jú, til þess að koma í veg fyrir að fólk fái mál sitt endurupptekið, til þess að í rauninni koma í veg fyrir það að fólk fái hér vernd. Það er mun fljótlegra að veita þeim vernd. Þetta snýst ekki um skilvirkni.

Það er ekkert sem bendir til þess að þessar breytingar muni fækka umsóknum hér á landi eða með öðrum hætti leysa þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir vegna síaukins fjölda fólks á flótta og það er ekkert sem bendir til þess að það fari minnkandi á næstu árum. Þvert á móti þá ættum við að vera að búa kerfið okkar undir aukinn fjölda. En þetta frumvarp hefur engin áhrif á það. Hvorki mun það fækka þeim sem hingað leita né gera kerfið betur í stakk búið að takast á við aukinn fjölda, ekki með neinum hætti.

Breytingarnar munu fjölga einstaklingum sem eru hérna árum saman án þess að fá niðurstöðu. Hvernig og hvers vegna? Jú, vegna þess að það er í rauninni verið að, hvað eigum við að segja, óvirkja eða eyðileggja þá fresti sem stjórnvöldum hafa verið settir til að klára málin. Þessir frestir snúast ekki bara um það að veita fólki rétt. Það er sem sagt þannig í núgildandi lögum, eins og hefur verið tíðrætt í þessari umræðu, að ef stjórnvöld hafa ekki klárað mál innan 12 mánaða og tafir á málsmeðferð eru ekki á ábyrgð umsækjenda, þær eru á ábyrgð stjórnvalda, þá skal málið tekið til efnismeðferðar. Og í mjög mörgum tilvikum leiðir það til þess að fólk fái vernd. Þetta er bæði til að tryggja það að fólk sé ekki hérna í lausu lofti í mörg, mörg ár án þess að fá niðurstöðu í máli sínu. En þetta er líka til þess að stytta málsmeðferðartímann, til að spara tíma í kerfinu, vegna þess að meðan fólk er í kerfinu má það ekki vinna og þá er það upp á sósíalinn komið. Við viljum öll hætta því. Við viljum öll stytta þann tíma og sleppa því.

En þessar breytingar snúast ekkert um það. Þessar breytingar snúast um það að einstaklingur sem hefur verið hérna í 12 mánuði — og hann ber ekki ábyrgð á töfum á málsmeðferðinni — að það er í rauninni nánast útilokað að með þessum breytingum muni hann fá mál sitt tekið upp eftir þessa 12 mánuði, sem þýðir hvað? Stjórnvöld hafa bara í rauninni alla ævi viðkomandi einstaklings til þess að klára málið. Við förum aftur í stöðuna sem var fyrir árið 2016 sem verið var að leysa með þessum frestum. Það er verið að eyðileggja þessa fresti sem voru ein mesta réttarbótin með þessum lögum frá árinu 2016, ekki bara fyrir einstaklingana heldur líka fyrir kerfið, fyrir ríkissjóð, fyrir alla. Hvers vegna? Jú, vegna þess að sérstaklega eftir Covid, þegar það var ekki hægt að flytja fólk úr landi, þá var nokkur fjöldi einstaklinga sem fékk vernd út af þessum 12 mánaða fresti sem hefðu ella ekki fengið vernd. En þeir eru samt teljandi í nokkrum tugum. Við erum ekki að tala um nein hundruð eða þúsundir einstaklinga. En þetta líkar Útlendingastofnun ekki og ráðherra stendur með henni. Þess vegna er verið að gera þessar breytingar. Það snýst ekki um neina skilvirkni, snýst ekkert um að einfalda kerfið, stytta málsmeðferðartíma. Þvert á móti. Breytingarnar munu skerða réttindi fólks á flótta, eins og ég fór yfir í löngu máli hérna rétt áðan þannig að ég ætla ekkert að endurtaka það.

Svo vil ég bara benda á það sem hefur verið margbent á í þessari umræðu: Móttaka flóttafólks frá Úkraínu í þúsundatali hefur sýnt það að það þarf ekki að gera neinar lagabreytingar til að tryggja skilvirkni í þessu kerfi. Vandinn við kerfið er ekki löggjöfin heldur framkvæmdin, sem er mannfjandsamleg og skapar miklar tafir og tregðu í kerfinu. Tilgangur þessa frumvarps er að staðfesta, lögfesta ólögmæta framkvæmd stjórnvalda síðustu ár, lögfesta framkvæmd sem hefur verið gagnrýnd, verið dæmd, úrskurðuð ólögmæt jafnvel. Áskorunin sem við eigum að vera að setja peninga í frekar en þessa vitleysu eru innviðirnir okkar. (Forseti hringir.) Tækifæri, nýtt fólk til aðlögunar í samfélaginu. Það er það sem við eigum að vera að eyða peningunum í, ekki þetta rugl.