útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég vildi koma hérna upp til að koma einu atriði að í lokin. Ég ætla mér ekki að endurtaka það sem ég hef þegar fjallað er um, sérstaklega í 2. umr. um þetta mál, heldur ætla ég að koma að einu atriði sem mér finnst mikilvægt að koma að í lokin.
Við höfum mikið talað um það að við höfum ástæðu til að ætla að þetta frumvarp brjóti gegn stjórnarskrárvörðum réttindum flóttafólks. Í þeim efnum höfum við óskað eftir því að fá sjálfstætt mat Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands á því hvort þessi ótti okkar sé á rökum reistur, sem við teljum að hann sé. Meiri hlutinn hefur bara staðið gegn þessu. Ýmislegt hefur verið sagt um hvers vegna meiri hlutinn hefur ákveðið að fara þessa leið. Ég gagnrýnt meiri hlutann fyrir að forðast lýðræðislegt, faglegt aðhald með störfum sínum.
Mig langar líka að koma hérna á framfæri því sem ég held að sé ástæðan fyrir því að meiri hlutinn neitar okkur um þetta lögfræðiálit. Það eru ekki peningar. Það er ekki af því að þeim finnist það bara óþarfi. Og vissulega er þeim sama hvort þetta frumvarp brjóti gegn stjórnarskrárvörðum réttindum flóttafólks eða ekki, þeim er algjörlega sama. En það er ekki þess vegna, held ég, sem þau neita okkur um þetta. Það er vegna þess að það hentar málstað stjórnarliða að mála þetta upp sem eitthvert pólitískt karp, að gera það að verkum að það er hægt að búa til eitthvert „hann segir, hún segir, þau segja-móment“ út úr þessu, sem þýðir að það er alltaf hægt að draga sannleikann í efa.
Mig langar aðeins að fara yfir hvers vegna ég tel þetta vera mjög andlýðræðislegt og hættulegt viðhorf hjá meiri hlutanum. Þetta hentar þeim vegna þess að þau geta sagt: Ja, ég meina, það er bara ykkar skoðun að þetta brjóti á réttindum og það er okkar skoðun að það geri það ekki. Og þar með þarf almenningur að velja hvorum maður vill treysta. Aðkoma faglegra aðila að mati af þessu tagi gæti gefið almenningi tæki til þess að mynda sér upplýsta afstöðu gagnvart því hvort þetta stenst skoðun eða ekki. Það er það sem meiri hlutinn vill ekki að fari fram til þess einmitt að þau geti falið sig á bak við það að þetta séu bara einhverjir Píratar æpandi upp í einhverri í pontu og það þurfi ekkert að taka mark á þeim vegna þess að stjórnarliðar viti betur. Þeim finnst mjög þægilegt að hafa flókin lögfræðileg úrlausnarefni sem skipta máli, vegna þess að það skiptir máli að lögin sem við setjum hérna séu samkvæmt lögum. Það skiptir líka máli að ráðherrar hagi sér í samræmi við lög. Oft eru þetta flókin lögfræðileg úrlausnarefni þar sem við sem erum löglærð getum komið með okkar athugasemdir um það. En þær eru alltaf lesnar með þeirri linsu að við séum stjórnarandstæðingar og þar af leiðandi viljum við bara stjórninni eitthvað illt og þar af leiðandi eigi ekki að taka mark á okkur, sama hvað við komum með skýr og góð og, að okkur finnst, pottþétt rök fyrir því að vissulega brjóti þetta frumvarp á stjórnarskrárvörðum réttindum flóttafólks. Þá hentar það einfaldlega meiri hlutanum að koma í veg fyrir að við fáum úr því skorið af hlutlausum sérfræðingi hvort okkar hefur rétt fyrir sér vegna þess að þau vita að þau geta í krafti meiri hlutans þröngvað þessu máli í gegn þvert á allar áhyggjur, þvert á allar ábendingar umsagnaraðila, bara af því að þau eru í meiri hluta. Bara: Ég á þetta, ég má þetta. Þau vita að þau geta það. Og það er þægilegra að gera það þannig að þau geti bara málað okkur upp sem einhverja klikkhausa sem vilja þeim eitthvað illt og það eigi ekki að taka mark á okkur.
Þetta er því miður ekki einsdæmi, alls ekki. Við getum fundið hliðstæðu í svo mörgum málum sem eru hér í deiglunni á þinginu. Mjög gott nýlegt dæmi um þetta er salan á Íslandsbanka þar sem fjármálaráðherra selur föður sínum hlut í Íslandsbanka. Ég og fleiri höfum verið að segja alveg frá því að þetta gerðist: Heyrðu, fjármálaráðherra má ekki selja pabba sínum hlut í ríkiseign. Við erum með stjórnsýslulög og stjórnsýslulögin banna þetta. Þú mátt ekki taka stjórnvaldsákvörðun þar sem er svona mikill hagsmunaárekstur. Þú mátt ekki ákveða að selja konunni þinni banka, þú mátt ekki ákveða að selja pabba þínum banka, þú mátt ekki ákveða að selja mömmu þinni banka. Það er bara bannað. Og stjórnarliðar segja bara: Nei, ég þurfti ekkert að gá hvort ég væri hæfur. Ég þurfti ekkert að pæla í þessu út af alls konar ástæðum. Og þær fara jafnvel í hringi og það er bara patað út í allar áttir. En það er a.m.k. ekki gengist við því að þarna sé æpandi hagsmunaárekstur sem fjármálaráðherra mátti ekkert stuðla að.
Ókei. Við tökum okkur til og óskum eftir því að fá sjálfstætt lögfræðiálit um þetta fyrst stjórnarliðar neita að viðurkenna það sem við erum að halda fram. Þau vilja meina að við séum bara að segja þetta í einhverju áróðursskyni gegn þeim en ekki — ég veit það ekki, kannski bara af því að lögin banna fjármálaráðherra að selja pabba sínum hlut í ríkiseign. Og þá er svarið nei. Hvers vegna? Vegna þess að þeim finnst gott að geta sagt: Ja, þetta er bara Þórhildur Sunna sem er að segja þetta. Hún er að á móti okkur af því að hún er í stjórnarandstöðu og það er ekkert hægt að taka neitt mark á henni.
Þetta er ástæðan fyrir því að þetta er andlýðræðislegt, af því að þau neita okkur um aðgang að sérfræðiþekkingu, að sérfræðingum sem geta lagt mat á svona hluti sem standa utan þessa mengis þar sem er bara hægt að benda og segja: Heyrðu, þú ert óhæf til að koma með svona fullyrðingar af því að þú ert á móti okkur. Þau vilja ekki faglegt, lýðræðislegt aðhald með störfum sínum. Og það er ástæðan fyrir því að þau hafna lögfræðiáliti í þessu máli og í öllum hinum málunum.
Það er mjög andlýðræðislegt, virðulegi forseti, og ég vildi koma því að undir lok þessarar umræðu, að bara þetta skref, að neita okkur um þetta lögfræðiálit, að neita okkur um að fá úr þessu skorið af einhverjum hlutlægum aðila — það er verið að höggva af lýðræðinu með hverju hamarshögginu á fætur öðru af hálfu þessa meiri hluta. Þetta er hættuleg þróun og hún snertir ekki bara flóttafólk, eins og hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir komst svo vel að orði áðan. Ef þau fá að brjóta þessi réttindi þá er ekki langt, og það er í raun mjög stutt, í að þau brjóti öll hin.