útlendingar.
Forseti. Ég ætla að halda áfram þar sem frá var horfið. Það er ýmislegt sem hægt er að segja um þetta mál. En mig langaði aðeins að tala um hvernig þetta frumvarp er borið á borð. Það er eins og þau hafi ætlað að gera eitthvað verra en vegna þess að það var aðeins dregið úr því þá sé frumvarpið ekki áfram rosalega vont og slæmt. Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir sagði: Mynduð þið frekar vilja endursendingarbúðir eða eitthvað því um líkt? Eins og það sé ekkert annað í stöðunni, eins og það sé verið að stilla þessu upp sem einhverjum tveimur mjög slæmum hlutum og annar er skárri kostur og þú þarft að velja. Það var ekkert þannig. En það er eins og verið sé að stilla þessu upp þannig: Við erum alla vega ekki með endursendingarbúðir. Er þetta þá ekki bara fínt eins og þetta er? — Nei, það var aldrei nein umræða um þetta og það er bara hræðilegt.
Þótt eitthvað sé vont og það sé til eitthvað verra einhvers staðar annars staðar, það sé til eitthvað verra á öðrum Norðurlöndum eða eitthvað svoleiðis, þá þýðir það ekki að þetta sé ekki slæmt. Það er ekki svo. Þó að einhvers staðar annars staðar sé verið að gera eitthvað sem okkur finnst slæmt þá þýðir það ekki að þetta sé eitthvað betra. Það er verið að stilla þessu þannig upp. Mér finnst það ótrúlega áhugavert, eins og við ættum bara að vera ánægð með að það sé ekki verið að ganga svona langt; að það sé þó einhvers konar mannúð einhvers staðar. Ég er ósammála því .
Einnig þegar við ræðum um t.d. réttindi barna í þessu samhengi þá er það einnig bara svona: Ókei, börnin hafa sjálfstæðan rétt. Núna, ef þetta frumvarp verður samþykkt, verða börn látin líða fyrir athafnir annarra, hver sem það er, lögmaður barnsins eða foreldrar eða aðrir. Já, það er ótrúlega mikil afturför og það er ótrúlega slæmt vitandi það að við ættum að standa vörð um réttindi barna og við ættum að taka það mjög alvarlega að standa vörð um réttindi þeirra, hvort sem það eru börn á flótta, fylgdarlaus börn eða önnur börn, það skiptir ekki máli. Barn er barn, hvort sem það talar íslensku eða ekki. Það bara skiptir ekki máli. Og ef við erum að fara til baka í réttindum barna þá hugsar maður: Bíddu, hvert erum við komin? Hvert erum við að stefna?
Og varðandi fjölskyldusameiningu, að vera líka að passa að það sé örugglega enginn sem sameinast fjölskyldunni sinni sem gæti mögulega verið eitthvað að svindla á einhverju. Að okkur finnst það hræðilegt að fjölskyldan sameinist þegar það er örugglega öllum í samfélaginu til bóta að fólk sameinist sínu fólki, að fjölskyldur sameinist, að makar sameinist. Það er ótrúlega mikið um þunglyndi, kvíða, einangrun og einmanaleika hjá fólki og það að við séum að fara til baka í svona mikilvægum málaflokkum er bara mjög sorglegt.