153. löggjafarþing — 80. fundur,  14. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:06]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):

Frú forseti. Ég get alveg lofað ykkur að ég er orðin jafn leið á því að tala um þetta mál og þið. En það sem mig langaði bara að segja rétt að lokum, ég ætla vera mjög stuttorð í þetta skiptið, ég lofa, er varðandi breytingartillögurnar sem meiri hlutinn ætlar að gera samkvæmt meirihlutaáliti. Ef það væri rétt sem haldið er fram af hálfu þingmanna meiri hlutans að tilgangur þessa frumvarps sé skilvirkni, straumlínulögun kerfisins án þess að brjóta á réttindum fólks og annað, þá myndu þau taka til greina allar athugasemdir sem hafa komið fram við meðferð málsins. Hvers vegna? Jú, vegna þess að engin af þeim athugasemdum, jafnvel beinum tillögum sem hafa verið gerðar að breytingum á málinu, myndu hreyfa við þeim markmiðum, vegna þess að það eru allir sammála því að kerfið eigi að vera skilvirkt og að það eigi að vera straumlínulagað og virka vel og allt það. Þetta mál snýst um pólitík. Það snýst um það að ríkisstjórnarflokkarnir eru búnir að semja um það við Sjálfstæðisflokkinn að koma þessu í gegn. Hvað þeir fá í staðinn munum við sennilega aldrei fá að vita. En það er staðan og þetta vil ég bara einfaldlega að hafa á hreinu vegna þess að því er haldið uppi af hálfu meiri hlutans í opinberri umræðu um þetta mál að þetta séu brýnar breytingar og að það þurfi að gera eitthvað til að bregðast við þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir. Ég er sammála því að við þurfum að gera eitthvað til að bregðast við þeim áskorunum, en það er ekkert í þessu frumvarpi sem gerir það.

Ég ætla biðla einu sinni enn til hv. þingmanna meiri hlutans um að hugsa sig vel um og greiða atkvæði samkvæmt sannfæringu sinni á morgun, gera jafn vel grein fyrir sannfæringu sinni í atkvæðaskýringu á morgun, vegna þess að þetta er stórt mál, það varðar mikilvæga hagsmuni en það leysir engin vandamál.