skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða (gjaldmiðlaáhætta og upplýsingagjöf til sjóðfélaga).
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á fjárfestingarheimildum lífeyrissjóða sem snúa að gjaldeyrisáhættu og breytingar á reglum um upplýsingaskyldu til sjóðfélaga. Um er að ræða endurflutt mál frá 152. löggjafarþingi, en ekki náðist að afgreiða málið þá. Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti sem liggur frammi.
Við umfjöllun nefndarinnar var vel tekið í þau áform að leggja aukna áherslu á rafræna upplýsingagjöf lífeyrissjóðanna. Í umsögnum kom þó fram að mikið af þeim upplýsingum sem lífeyrissjóðum yrði skylt að birta nýjum sjóðfélögum væru almenns eðlis og ekki sérstök ástæða til að hafa þær upplýsingar aðgengilegar einungis á vefsvæði sem þarfnist rafrænnar auðkenningar. Einnig var bent á að með hugtakinu vefsvæði væri ekki skýrt hvort unnt yrði að nýta rafrænar lausnir á borð við smáforrit á síma. Líkt og nánar verður gerð grein fyrir síðar tekur meiri hlutinn undir þessar ábendingar.
Í 2.-5. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða sem snúa að gjaldeyrisáhættu og heimildum til kaupa á afleiðum. Í 4. gr. er lögð til sú breyting að lágmark eigna lífeyrissjóðs í innlendum gjaldmiðli lækki úr 50% í 35%. Gert er ráð fyrir að breytingin taki gildi í þrepum og komi að fullu til framkvæmda 1. janúar 2036.
Við umfjöllun nefndarinnar komu fram sjónarmið þess efnis að eðlilegt kynni að vera að innleiðing ákvæðis 4 gr. færi fram á skemmri tíma. Var bent á að rýmkunin yrði í reynd einungis nýtt af nokkrum lífeyrissjóðum og að mikilvægt væri að auka hlutdeild erlendra eigna í eignasafni þeirra vegna áhættudreifingar í ljósi smæðar hagkerfisins.
Líkt og rakið er í minnisblaði ráðuneytisins komu sömu athugasemdir fram fyrir framlagningu frumvarpsins á 152. löggjafarþingi og hefur að nokkru leyti verið brugðist við þeim. Þannig hefur árleg hækkun á fjárfestingarheimildum lífeyrissjóða í erlendum gjaldmiðlum verið rýmkuð úr 1% í 1,5% fyrstu fjögur ár tímabilsins. Við bætist rýmkun á heimildum sjóðanna í ljósi 5. gr. frumvarpsins sem felur í sér að breytingar á gengi og verðhækkanir á erlendum mörkuðum hafi ekki þau áhrif að lífeyrissjóðum beri að grípa til ráðstafana til þess að koma gjaldeyrisáhættunni í það horf að hún sé innan lögbundinna viðmiða. Með vísan til þess og nánari umfjöllunar í minnisblaði ráðuneytisins telur meiri hlutinn ekki forsendur til þess að ganga lengra í innleiðingu ákvæðisins en lagt er til.
Í 5. gr. frumvarpsins er lagt til að ný málsgrein bætist við 37. gr. laganna sem kveður á um skyldu lífeyrissjóða til að gera ráðstafanir til úrbóta fari fjárfestingar þeirra fram úr mörkum. Nánar tiltekið er lagt til að ákvæðið eigi ekki við nema að því er varðar tilkynningarskylduna í þeim tilvikum þegar breytingar á gengi íslensku krónunnar eða verðhækkanir á erlendum eignamörkuðum leiða til þess að gjaldmiðlaáhætta lífeyrissjóða fari fram úr leyfilegum mörkum. Í umsögn Seðlabanka Íslands er lagt til að undanþágan gildi til bráðabirgða og renni sitt skeið þegar því hámarki sem kveðið er á um í 1. mgr. 4. gr. frumvarpsins er náð. Í minnisblaði ráðuneytisins kemur fram að tillagan byggist á tillögu Más Guðmundssonar um að rýmka heimildir til þess að gera ráðstafanir til úrbóta. Tillagan sneri að því að gera lífeyrissjóðum betur kleift að nýta heimildir laganna til fjárfestingar í öðrum myntum en íslensku krónunni sem best, en ekki ætlað að taka á tímabundnum aðstæðum meðan aðlögun að nýju hámarki ætti sér stað. Óheppilegt væri í ljósi sveiflna í gengi gjaldmiðla og óvissu um ávöxtun á erlendum mörkuðum, sem geta orðið þess valdandi að lífeyrissjóðir fari yfir lögbundið hámark, að ákvæðið gilti til bráðabirgða.
Líkt og að framan er rakið komu fram ábendingar um að ákvæði 1. gr. frumvarpsins, sem kveður á um skyldu lífeyrissjóða til þess að birta tilteknar upplýsingar með rafrænum hætti á vefsvæði sem þarfnast rafrænnar auðkenningar væri ekki skýrt um það hvort mið væri tekið af mismunandi tæknilausnum lífeyrissjóða auk þess sem óþarft kynni að vera að takmarka birtingu almennra upplýsinga á vefsvæði sem þarfnast rafrænnar auðkenningar. Í minnisblaði ráðuneytisins er lagt til að ákvæðið verði umorðað og að ekki verði tilgreint að upplýsingarnar skuli birtar á vefsvæði, auk þess sem greint verði á milli almennra upplýsinga og þeirra upplýsinga sem eðlilegt er að séu einungis aðgengilegar með rafrænni auðkenningu sjóðfélaga. Meiri hlutinn tekur undir þessa tillögu og gerir hana að sinni.
Við umfjöllun nefndarinnar benti ráðuneytið á að við undirbúning frumvarps til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna hækkunar lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs (lágmarkstryggingavernd, tilgreind séreign o.fl.), sem varð að lögum nr. 55/2022, hefði orðalag ákvæða misfarist lítillega. Nánar tiltekið væri um að ræða þrjú atriði í 2. gr. laganna sem breytti 4. gr. laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Um er að ræða leiðréttingar sem ætlað er að tryggja virkni laganna eins og gert var ráð fyrir í greinargerð þess frumvarps. Meiri hlutinn leggur til breytingar til samræmis líkt og nánar er rakið í nefndaráliti.
Vísast að öðru leyti til ítarlegri umfjöllunar um breytingartillögur í áliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir og lagðar eru til í nefndaráliti.
Undir nefndarálitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Ágúst Bjarni Garðarsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Guðbrandur Einarsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Logi Einarsson og Steinunn Þóra Árnadóttir.