upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. 10. þm. Reykv. n., Andrési Inga Jónssyni, fyrir spurninguna. Ég tek heils hugar undir orð hv. þingmanns um nauðsyn þess að taka upp flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar og grænar fjárfestingar. Hann vísar til minna fyrri starfa fyrir lífeyrissjóðina hér á Íslandi og það er rétt að þetta hefur verið mikið verið rætt þar og mörg og markviss skref verið stigin. Ég vil ítreka það að með Parísarsamkomulaginu sem var undirritað árið 2016 þá skuldbundu ríki Sameinuðu þjóðanna sig til að draga markvisst úr losun og takast á við afleiðingar loftslagsbreytinga og tryggja á sama tíma umtalsvert fjármagn til grænna verkefna og grænna lausna og þetta er að mínu mati partur af því. Það var síðan í mars 2018 sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnir aðgerðaáætlun um fjármögnun sjálfbærs vaxtar innan sambandsins og þetta er allt saman hluti af því. Við erum hér á eftir. Það má segja að þetta frumvarp sé liður í þessum innleiðingarhalla sem mikið er talað um. En mig langar sömuleiðis, af því að hann nefnir Taxonomy-reglugerðina, að nefna að þar er flokkunarkerfi sem tekur mið af umhverfismarkmiðum og þar voru sett grunnskilyrði til þess að atvinnustarfsemi geti talist sjálfbær. Ég ætla að ítreka það að ég held að þetta sé mjög jákvætt skref. (Forseti hringir.) Þetta auðveldar fjárfestum mjög og þetta eykur gagnsæi, t.d. fyrir lífeyrisþega á Íslandi, til að sjá í hverju peningarnir þeirra eru fjárfestir.