upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir spurninguna. Ég ætla að vera alveg heiðarleg í mínu svari til hv. 10. þm. Reykv. n. um að nefndin tók það ekki til efnislegrar umfjöllunar hvort taka ætti út kjarnorku eða gas. Með því værum við komin, eins og hv. þingmaður segir, lengra heldur en Evrópusambandið er að leggja til. Hins vegar vil ég ítreka það að þetta flokkunarkerfi er af hinu góða og því er ætlað að sporna við grænþvotti, ég ætla að fá að ítreka það. Þetta kerfi á að auka gagnsæi. Það á að hjálpa fjárfestum og fyrirtækjum að átta sig á því hversu sjálfbær tiltekin atvinnustarfsemi er og á að hjálpa fjárfestum að taka upplýstar ákvarðanir um fjárfestingar sínar með sjálfbærni að leiðarljósi. Því er ætlað að sporna við grænþvotti og líka að sýna fram á ef umhverfisstaðlar hafa í reynd ekki verið uppfylltir af viðkomandi fyrirtækjum. Ég held að ég fari rétt með að þetta sé ný löggjöf í Evrópu. Hún er framsækin, hún miðar að því að bregðast við skuldbindingum sem þjóðir hafa skrifað undir og þá nefni ég aftur Parísarsamkomulagið. Ég held að það skref sem við erum að stíga hér sé jákvætt og ég styð það heils hugar.