153. löggjafarþing — 80. fundur,  14. mars 2023.

upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar.

415. mál
[19:14]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, 7. þm. Suðvest., fyrir ræðu sína. Hér veltir hún því upp að hér sé öllu snúið á hvolf og hér séu mjög annarlegar hvatir á ferð, pólitísk afskipti, að hin pólitísku öfl í Evrópusambandinu hafi kiknað undan lobbýisma o.s.frv. Það sé mikill ágreiningur um hvað falli undir þessa flokkun og hvað ekki. Ég tel að það sé nánast ómögulegt að ætla að koma fram með svona kerfi og það sé algerlega hafið yfir vafa eða hafið yfir allan ágreining. Þarna séu efasemdir um afmarkaða hluti, segir hv. þingmaður, og það séu málaferli í gangi. Það er kallað eftir því að málið fari aftur til nefndar og það er kallað eftir faglegri ráðgjöf. Ég vil því spyrja hv. þingmann: Telur hún að það hafi verið algerlega ótímabært að leggja þetta frumvarp fram núna þar sem málaferli eru í gangi og það er ekki búið að fá úr þeim skorið í Evrópu?