153. löggjafarþing — 81. fundur,  15. mars 2023.

opinn fundur um skýrslu um Lindarhvol.

[17:19]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Hér er að teiknast upp svolítið áhugaverð staða í boði ríkisstjórnarflokkanna. Gagnsæið er orðið svo mikið, upplýsingaviljinn og upplýsingagjöfin svo yfirþyrmandi að nú stendur til að halda opinn fund í beinni útsendingu um trúnaðarmál. Gagnsæið er svo mikið að þessi opni fundur í beinni útsendingu er um trúnaðargögn sem þingmenn meiri hlutans segjast vilja birta en ætla samt bara ekki að gera það. Settur ríkisendurskoðandi á að sitja fyrir svörum um eitthvað sem enginn veit hvað er og enginn má tala um og alls ekki spyrja um þótt ríkisstjórnarflokkunum finnist að samtalið eigi að fara fram fyrir opnum tjöldum í trúnaði. Alltaf gott að taka samtalið. Þetta opinbera trúnaðarsamtal í beinni útsendingu um trúnaðargögnin fer fram eftir helgi þar sem sá sem situr fyrir svörum má alls ekki svara. Þegar ég vann í sjónvarpinu voru svona trúnaðarmál sem ræða þurfti opinberlega afgreidd þannig að gesturinn var blörraður og röddinni breytt. [Hlátur í þingsal.] Í tilfelli Alþingis er annar kostur í boði og hann er talsvert betri: Afléttum trúnaði af greinargerðinni og ræðum opinberlega, efnislega og án trúnaðar í beinni útsendingu hvernig farið var með fjármuni almennings. Þessi fyrirhugaði farsi stjórnarmeirihlutans um leyndardóma Leyndarhvols er með þeim lélegri á dagskrá Alþingis í manna minnum. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)