opinn fundur um skýrslu um Lindarhvol.
Forseti. Meiri hlutinn klifar sífellt á því að það sé bannað að birta þessa greinargerð. Það er ekki rétt. Ef það væri þannig að þetta væri vinnuskjal sem væri undanþága frá því að birta, þá þýðir það ekki að það sé bannað að birta greinargerðina, það væri bara undanþága, í raun bara nákvæmlega eins og fjármálaráðherra birti listann yfir kaupendurna að Íslandsbanka. Það var lögfræðiálit um að það væri ákveðið gagn sem þyrfti ekki að birta, bara undanþága frá því að birta það. Það var samt gert. Það var ekkert bannað. Það mátti alveg gera það. Það er það nákvæmlega sama í þessu máli. Við skulum passa okkur á að tala rétt um gögnin sem við erum að vinna með hérna og ekki láta fólk slá ryki í augun á okkur varðandi það að það sé eitthvað bannað hérna. Ef þetta væri vinnuskjal þá væri heimild til að birta það ekki, en það mætti alveg gera það. Það myndi ekki brjóta á neinum eða neitt slíkt. Enda er ekkert í þessu þessari greinargerð sem á að leyna á neinn hátt.
Forsætisnefnd spurði um það í fyrra, bað um lögfræðiálit um það hvað í greinargerðinni bæri að stroka yfir af því að það væri einhver leynd yfir því vegna persónuverndar eða ýmislegs svoleiðis. Og það var ekkert. Það er eina lögfræðiálitið sem við erum með sem segir nákvæmlega það. Enginn annar aðili hefur komið og sagt: Nákvæmlega þetta er eitthvað sem verður að fela. Enginn.