153. löggjafarþing — 81. fundur,  15. mars 2023.

opinn fundur um skýrslu um Lindarhvol.

[17:34]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegur forseti. Fyrrverandi settur ríkisendurskoðandi, Sigurður Þórðarson, hefur áður verið boðaður fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og ég ætla að lesa upp úr bréfi þar sem hann lýsir því hvernig það endaði.

„Ég var boðaður á fjarfund nefndarinnar 19. ágúst 2021 þar sem fyrrnefnt bréf mitt frá 17. febrúar 2021 var m.a. til umfjöllunar. Í upphafi fundarins kynnti formaður nefndarinnar þá ákvörðun skrifstofu Alþingis að með bréf setts ríkisendurskoðanda frá 17. febrúar 2021 “ — sem hafði að geyma athugasemdir við lokaskýrslu Ríkisendurskoðunar, skýrslu sem nota bene vísar sérstaklega til þessa svokallaða vinnuskjals, skýrslu sem felur í sér einhvers konar samtal við skjal sem stjórnarliðar halda því fram hér að sé einfaldlega drög og vinnuskjal til eigin nota hjá stofnuninni. En svo ég klári nú að lesa upp úr þessu:

„Í upphafi fundarins kynnti formaður nefndarinnar þá ákvörðun skrifstofu Alþingis að með bréf setts ríkisendurskoðanda skyldi fara sem trúnaðarmál og honum bæri að taka og meta sjálfur (Forseti hringir.) hvaða atriði í bréfinu væru háð trúnaði við umfjöllun hans á fundinum. Ég benti á að efnið í bréfi mínu væri svar við skýrslu Ríkisendurskoðunar sem væri opinbert gagn og því gæti ekki verið til staðar trúnaður á þeirri umfjöllun. (Forseti hringir.) Þá óskaði ég eftir að mér væri kynnt á hvaða atriðum í bréfi mínu ætti að hvíla leynd að mati skrifstofu Alþingis. (Forseti hringir.) Ekki fengust svör við því og ákvað ég því í framhaldinu að ég myndi ekki ræða efni bréfsins á fundinum.“

Þannig fór um sjóferð þá. Ég skil ekki almennilega hvað stjórnarmeirihlutanum gengur til í þessu máli nema einhvern veginn að gera grín að manninum.