opinn fundur um skýrslu um Lindarhvol.
Virðulegi forseti. Það sem ég velti fyrir mér, fyrst það er verið að tala um drög, vinnuplögg og annað slíkt: Hvenær hefur það tíðkast að ríkisendurskoðandi sé að senda Alþingi vinnuplagg og drög að því sem hann raunverulega á að gera? Það er nú það fyrsta hérna sem ég negli hausnum í. Og í öðru lagi: Hvernig stendur á því að vera að gera svona lítið úr settum ríkisendurskoðanda, sem var jú í eitt ár að sjóða saman þessi drög og þessi vinnuplögg, sem eru síðan sett í andlitið á okkur. Meira að segja háttvirtur eða hæstvirtur eða virðulegur forseti segir að ríkisendurskoðandi vilji í rauninni ekki að við birtum og við megum ekki einu sinni sjá. Við erum kjörnir fulltrúar. Hvers lags fíflagangur er þetta, með fullri virðingu, hv. þingmenn og virðulegur forseti? Ég botna hvorki upp né niður í þessu og það á skilyrðislaust að birta þessa skýrslu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)