153. löggjafarþing — 81. fundur, 15. mars 2023.
opinn fundur um skýrslu um Lindarhvol.
Virðulegi forseti. Ég veit að ég á að koma hérna upp og mér á að vera gróflega misboðið en mér finnst þetta bara svo sjúklega fyndin sena þegar stjórnarliðar standa hér og tala: Hér er að teiknast upp ofboðslega flókin staða. Við megum bara ekki. Við erum að vísu með mjög skýrt lögfræðiálit sem segir að okkur beri skylda til að birta þetta gagn. Allir í forsætisnefnd vilja birta þetta gagn. Ég vildi að gæti hjálpað ykkur en ég ætla bara ekki að gera það. Það er málið í þessu. — Góðar stundir.