153. löggjafarþing — 81. fundur,  15. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[19:31]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P):

Forseti. 15. gr. frumvarpsins fjallar um að takmarka rétt flóttafólks sem kemur hingað til landsins í boði ríkisstjórnarinnar, svokallaðs kvótaflóttafólks, til þess að sameinast maka sínum. Þetta ákvæði frumvarpsins myndi einna helst bitna á hinsegin fólki því að það hefur oft ekki getað gifst eða fengið skráða stöðu maka í upprunaríki. Það er því helst í þeim tilvikum sem hjón eða sambúðaraðilar fylgjast ekki að í móttöku kvótaflóttafólks og sækja þá um síðar. Með þessu er verið að koma í veg fyrir að það sé hægt. Þessi skilningur var ítrekað staðfestur af ráðuneytinu við meðferð málsins í allsherjar- og menntamálanefnd. Þetta er því enginn misskilningur. Tilgangur ákvæðisins er óljós en hann er væntanlega til þess að koma í veg fyrir einhverja misnotkun sem ekkert bendir til að sé vandamál hér á landi. Því legg ég til að þetta ákvæði verði fellt brott.