greinargerð um Lindarhvol, orð þingmanns í atkvæðagreiðslu.
Hæstv. forseti. Ég kem hér upp sem formaður hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar því mér er vandi á höndum. Eins og forseta er kunnugt þá hefur meiri hluti nefndarinnar beðið um að skýrsla ríkisendurskoðanda um Lindarhvol frá árinu 2020 verði tekin til umfjöllunar í nefndinni og ég hef orðið við því. Nú hlýddi ég á hæstv. forseta í útvarpinu í gær gefa mér alls kyns góð ráð um það hvernig best væri að stjórna fundum í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. En mig langar til þess að biðja hæstv. forseta að stuðla að virðingu Alþingis, gegnsæi og ábyrgum stjórnarháttum og flækja nú þetta mál ekki frekar en nú er orðið og aflétta trúnaði af greinargerðinni sem forsætisnefnd hafði samþykkt að aflétta trúnaði af í apríl í fyrra. Þetta getur ekki gengið svona lengur, hæstv. forseti. Hvað er verið að fela? Hvernig á hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að geta haldið fundi, hvað þá opna fundi, um skjöl sem ekki má vitna í og ekki má nýta sem gögn í máli sem við ætlum að ræða?