greinargerð um Lindarhvol, orð þingmanns í atkvæðagreiðslu.
Virðulegi forseti. Um leið og ég tek undir þau orð sem hér hafa verið látin falla varðandi þetta hneyksli með ekki-birtingu Lindarhvolsskýrslunnar, þá kem ég hér upp í öðrum erindagjörðum. Ég kem hér upp til að bera af mér sakir því þann 15. mars sl. vændi hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir mig um útlendingaandúð. Ummæli hv. þingmanns urðu til þess að ég ákvað að leggja málið fyrir forsætisnefnd. Ummæli hv. þingmanns úr ræðustóli Alþingis eru sérstaklega til þess fallin að kasta rýrð á mig persónulega og geta kallað fram illmælgi og rógburð gagnvart mér í þjóðfélaginu, eru ærumeiðandi og til þess eins ætluð að sverta mannorð mitt. Þessi ummæli hv. þingmanns, þar sem hún fullyrðir að ég sé haldin útlendingaandúð, (Forseti hringir.) eru að gefnu tilefni einstaklega særandi fyrir mig og mína fjölskyldu.