153. löggjafarþing — 82. fundur,  20. mars 2023.

Samráðsleysi dómsmálaráðherra við ríkisstjórn varðandi rafvarnarvopn.

[16:02]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Þann 30. desember sl. birtist grein eftir hæstv. dómsmálaráðherra í fjölmiðlum þar sem hann tilkynnti almenningi um ákvörðun sína um að heimila lögreglumönnum að bera rafbyssur. Samdægurs hafði hann skrifað undir téðar reglur og þær voru sendar Stjórnartíðindum til birtingar. Ekki nóg með að almenningur hafi fyrst frétt af ákvörðuninni að morgni dags þann 30. desember, þann sama dag og hæstv. ráðherra undirritaði reglur þess efnis og sendi til birtingar, heldur er nú staðfest að sjálf ríkisstjórnin frétti þá líka af þessu fyrst, þar á meðal hæstv. forsætisráðherra. Það var nefnilega ekki fyrr en hálfum mánuði síðar sem málið var rætt í ríkisstjórn, eða þann 13. janúar. Samkvæmt svari dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn umboðsmanns Alþingis hafði hæstv. ráðherra tilkynnt hæstv. forsætisráðherra símleiðis um ákvörðun sína þann sama dag og hann undirritaði reglurnar, mögulega í kjölfar þess að hún las um málið yfir morgunkaffibollanum eins og aðrir landsmenn, þótt tilefni símtalsins eða frumkvæði að því hafi ekki komið fram í bréfi ráðuneytisins til umboðsmanns.

Bæði hæstv. dómsmálaráðherra sjálfur og ráðuneyti hans hafa haldið því fram að aðdragandi breytinganna hafi verið langur. Er því ekki unnt að sjá hvað hæstv. ráðherra taldi því til fyrirstöðu að kynna ákvörðun sína fyrir sinni eigin ríkisstjórn á fyrri stigum og jafnvel gefa kost á lýðræðislegri umræðu um málið, umsögnum almennings og hagsmunaaðila.

Samkvæmt 17. gr. stjórnarskrárinnar skal halda ráðherrafundi um nýmæli í lögum og um mikilvæg stjórnarmálefni. Af bréfi umboðsmanns Alþingis má ráða að framganga hæstv. dómsmálaráðherra í þessu máli hafi ekki verið í samræmi við ákvæði stjórnarskrárinnar, þótt það sé ekki á valdi umboðsmanns að fella dóm þar að lútandi.

Samkvæmt 2. gr. laga um ráðherraábyrgð má krefja ráðherra ábyrgðar samkvæmt því sem nánar er fyrir mælt í lögunum fyrir sérhver störf eða vanrækt starfa, er hann hefur orðið sekur um, ef málið er svo vaxið að hann hefur annaðhvort af ásetningi eða stórkostlegu hirðuleysi farið í bága við stjórnarskrá lýðveldisins, önnur landslög eða að öðru leyti stofnað hagsmunum ríkisins í fyrirsjáanlega hættu.

Landsdómur nokkur fer með og dæmir mál þau er Alþingi ákveður að höfða gegn ráðherrum út af embættisrekstri þeirra.

Þess má geta að téð 17. gr. stjórnarskrárinnar var tilefni eina dóms landsdóms, þar sem fyrrverandi forsætisráðherra, Geir H. Haarde, var sakfelldur fyrir að vanrækja skyldur sínar samkvæmt ákvæðinu. Tilefni þótti til í kjölfar bankahrunsins að útfæra þetta ákvæði með skýrari hætti.

Í 2. tölulið í 6. gr. laga nr. 115/2011, um Stjórnarráð Íslands, er kveðið á um að halda skuli ríkisstjórnarfundi um mikilvæg stjórnarmálefni. Til mikilvægra stjórnarmálefna teljast t.d. reglugerðir og yfirlýsingar sem taldar eru fela í sér mikilvæga stefnumörkun eða áherslubreytingar.

Í ljósi þess að lögreglan á Íslandi ber almennt ekki vopn, þar með talið rafbyssur, verður ekki annað séð en að um mikilvæga áherslubreytingu sé að ræða. Hefur hæstv. forsætisráðherra raunar staðfest að það sé afstaða hennar einnig. Komið hefur fram að eins og staðan er í dag skorti lögregluna þjálfun í meðferð og beitingu vopnanna sem og í því að meta aðstæður með viðhlítandi hætti svo að sem minnstur skaði verði af. Beiting rafvopna getur verið banvæn og sýnir reynsla annarra landa að það eru einna helst þeir hópar sem jaðarsettastir eru sem lenda í misnotkun á þeim. Þessi ákvörðun skiptir því miklu máli varðandi öryggi fólksins í landinu og traust þess gagnvart lögreglu, þá einkum þeirra sem standa höllum fæti. Auk þess, líkt og ítrekað hefur verið bent á síðustu ár, er eftirliti með störfum lögreglu stórlega ábótavant hér á landi og einu úrbæturnar sem sitjandi ríkisstjórn hefur lagt til eru þær að efla nefnd sem sjálf hefur lýst hlutverki sínu sem nokkurs konar póstflokkunarstöð fyrir ábendingar almennra borgara vegna starfa lögreglu.

Í umfjöllun um málið 23. janúar sl. rökstuddi hæstv. dómsmálaráðherra ákvörðun sína með því að öryggi lögreglumanna væri í húfi og vísaði í að þróunin væri sú að það væri mikið meira um slys á lögreglumönnum og meira um óhöpp gagnvart þeim í líkamlegum átökum. Þessi ummæli standast hins vegar ekki skoðun samkvæmt gögnum frá Vinnueftirlitinu. Raunar virðist sem áverkum af völdum manna eða dýra fari fækkandi og fjöldi tilkynntra slysa til Vinnueftirlitsins hafi haldist stöðugur þrátt fyrir aukna fólksfjölgun. Í úttekt Vinnueftirlitsins kom jafnframt fram að þessara upplýsinga hefði ekki verið óskað af hálfu dómsmálaráðuneytisins. Það liggur því skýrt fyrir að ákvörðun hæstv. dómsmálaráðherra var ekki eingöngu tekin í trássi við ákvæði stjórnarskrárinnar sjálfrar, án samráðs við þjóð eða þing og án samráðs við ríkisstjórnina sjálfa, heldur verður ekki annað séð en að forsendur ákvörðunarinnar séu einfaldlega rangar. Hvað þýðir það? Jú, að ákvörðun hæstv. dómsmálaráðherra hafi ekki verið byggð á faglegu mati á þörf og afleiðingum þessarar afdrifaríku breytingar á störfum lögreglu í landinu, ekki á staðreyndum heldur eingöngu á persónulegri og/eða pólitískri afstöðu hæstv. ráðherra sjálfs. Það er ekki að sjá á þessari atvikalýsingu að hæstv. dómsmálaráðherra beri lágmarksvirðingu fyrir hlutverki sínu í ríkisstjórn, hvað þá samráðsskyldu gagnvart þingi og þjóð. Því leita ég svara við eftirfarandi spurningum frá hæstv. forsætisráðherra sem er ekki aðeins ráðherra mannréttindamála heldur leiðir þessa ríkisstjórn.

Í bréfi umboðsmanns Alþingis til forsætisráðherra frá 13. mars segir, með leyfi forseta:

„Ég tel ástæðu til að minna á að fyrrgreindar reglur stjórnarskrár og laga nr. 115/2011 miða að því að tryggja viðhlítandi samvinnu og samstarf milli ráðherra þannig að ríkisstjórn starfi samhent að stefnumálum sínum. Láti ráðherra farast fyrir að virða þessar reglur felur það ekki eingöngu í sér brot á formreglu heldur stuðlar slík háttsemi að því að það pólitíska samráð sem lög og stjórnarskrá mæla fyrir um að fram skuli fara á vettvangi ríkisstjórnar er sniðgengið, sbr. til hliðsjónar ummæli í dómi Landsdóms 23. apríl 2012 … “

Að fengnu bréfi umboðsmanns og í ljósi þessara ummæla, lítur hæstv. forsætisráðherra svo á að hæstv. dómsmálaráðherra hafi gerst brotlegur við 17. gr. stjórnarskrárinnar, og eftir atvikum lög nr. 115/2011, er hann vanrækti að bera fyrirætlanir sínar um rafvopnavæðingu lögreglunnar upp á ríkisstjórnarfundi áður en ákvörðun var tekin um að senda reglugerðarbreytingu þess efnis til birtingar í Stjórnartíðindum? Telur hæstv. forsætisráðherra rétt að bregðast við þessari athugun umboðsmanns með einhverjum hætti? Ef já, hvernig? Ef nei, hvers vegna ekki? Tekur hæstv. forsætisráðherra undir með umboðsmanni Alþingis að með því að vanrækja skyldu sína til þess að bera áherslubreytingu á vopnaburði lögreglunnar upp á ríkisstjórnarfundi hafi hann unnið gegn því að ríkisstjórnin birtist borgurunum sem samhentur hópur stjórnenda? Tekur hæstv. forsætisráðherra undir með umboðsmanni þegar hann segir að þetta hafi þýðingu fyrir það traust sem almenningur eigi að geta borið til þess að æðsta stjórn landsins vinni mál og afgreiði af fagmennsku og yfirvegun?