153. löggjafarþing — 83. fundur,  20. mars 2023.

framboð á fjarnámi.

634. mál
[19:25]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Þetta er þörf umræða þegar undir liggja tækifæri fólks til að mennta sig nær heimabyggð, starfa þar, stunda nám þar í fjölbreyttum greinum. Hér er spurt: Af hverju þurfa að vera lotur? Er ekki nóg að hafa allt í fjarnámi líka? Hvernig getum við byggt upp fjarnám? Það er auðvitað undir háskólunum komið að tryggja að þeir sleppi ekki gæðakröfunum í náminu þó að það fari í fjarnám en ekki síst þarf auðvitað verklegi hluti náms oft að vera í staðnámi en allur bóklegi hlutinn getur verið í fjarnámi. Þetta er uppbygging sem skólarnir eru að þróa og eru alltaf að gera betur og betur og það eru mikil tækifæri fyrir stærri skólana líka. Af því að sérstaklega er bent á Háskóla Íslands gagnvart ýmsum meistaragráðum, sem eru algjör forsenda fyrir starfsþróun viðkomandi einstaklinga og starfstækifærum, þá veit ég að Háskóli Íslands hefur ráðið fjarnámsstjóra sem er að greina það hvernig hægt er að hreyfa sig hraðar í þessum efnum og bjóða upp á aukið nám í fjarnámi. Þau hafa verið rosalega viljug til að fara í samstarf með öðrum skólum og bjóða upp á nýjar leiðir og nýta þá líka fjarnámsgæði og undirbúning sem búið er að vinna í öðrum skólum sem hafa verið sérstaklega í fjarnámi.

Hérna eru bara gríðarleg tækifæri en undir liggur auðvitað líka fjármögnun háskólastigsins. Nemendur í tækni- og raungreinum og heilbrigðisvísindum eru tvöfalt dýrari en þeir sem eru í félagsvísindum. Við stöndum Norðurlöndunum talsvert að baki í að mennta þá og það er mjög alvarlegt gagnvart áskorunum sem mæta íslensku samfélagi, hvort sem það er öldrun þjóðarinnar eða stækkun í ákveðnum atvinnugreinum í atvinnulífinu, hvort sem það er hugverkaiðnaðurinn, alþjóðageirinn eða landeldi t.d. Þar er verk að vinna, að mennta fleiri í þeim greinum.