Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 85. fundur,  22. mars 2023.

Orkuöryggi.

[15:35]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að koma hér og ræða við mig um orkuöryggi, málefni sem er okkur öllum á Íslandi afar mikilvægt. Stjórnvöld hafa sett sér metnaðarfull markmið í loftslagsmálum og eru það forréttindi fyrir okkur að vera í þeirri öfundsverðu stöðu hvað varðar nýtingu grænnar endurnýjanlegrar orku og hafa raunverulega möguleika til þess að verða fyrsta landið sem verður óháð jarðefnaeldsneyti. En til að ná markmiðum okkar þurfum við að fara svara hversu mikla orku við þurfum og hvert við ætlum að stefna.

Í dag flytjum við inn jarðefnaeldsneyti fyrir um 300 milljarða kr. á ári. Það er einlægur vilji minn að þjóðin verði sjálfbær hvað eldsneyti varðar en sjálfbærni er eftirsóknarvert markmið hvort heldur sé í eldsneyti eða fæðuöryggi þjóða og hagvöxtur framtíðarinnar mun einmitt byggjast á grænni orku. Við sjáum það svo skýrt núna þegar orkumarkaðir erlendis eru í uppnámi og orkuöryggi er ógnað hversu mikilvægt það er að vera sjálfstæð og sjálfbær í orkumálum.

Á ársfundi Landsvirkjunar á dögunum kom fram að Landsvirkjun hafi þurft að hafna mörgum umhverfisvænum og áhugaverðum verkefnum vegna þess að raforkukerfi Landsvirkjunar er fullnýtt. Einnig kom fram að það væri mikil umframeftispurn í kerfinu. Atvinnulífið er komið hratt af stað í orkuskiptin en nauðsynlega innviði og orku skortir. Við byggjum allt okkar atvinnulíf og samkeppnisforskot á orkunni sem við búum yfir í landinu, en það getur fljótt dregið af þessu ef við höfum ekki nægjanlega orku. Ég hef ekki fundið annað en að allir vilji vanda til verka, en við búum við flókið verkferli í tengslum við framkvæmdir í orkumálum. Rammaáætlun sem við náðum að losa um á síðasta ári þarfnast yfirferðar og einfalda þarf leyfisferli. Ferlið frá umsókn til lokafrágangs virkjunar tekur allt að tíu til fimmtán ár. Já, tíu til fimmtán ár. Það blasir við okkur að verulegur orkuskortur er fram undan auk þess sem flutningstakmarkanir eru til staðar á milli landsvæða þannig að við sjáum það að aðgerða er klárlega þörf. Þá vantar okkur svör varðandi orkusækinn iðnað en verulega stór hluti af útflutningstekjum okkar má einmitt rekja þangað. Ætlum við að standa með þeim fyrirtækjum sem eru hér í dag og þeirra verkefnum til framtíðar? Viljum við vaxa og eflast sem samfélag?

Í grænbók um stöðu og áskoranir í orkumálum er okkur gefnar sex sviðsmyndir um orkuþörf landsins. Þær sviðsmyndir sem dregnar eru upp um aukna orkuþörf Íslands með vísan í loftslagsmarkmið spanna allt frá lítilli sem engri viðbót við raforkuframleiðslu Íslands til ríflega tvöföldunar hennar eða 124% aukningar fram til ársins 2040, allt eftir því hvort stefnt er að stöðnun eða auknum hagvexti. En hvaða sviðsmynd ætlum við að vinna með? Því er enn ósvarað hver orkuþörfin er. Meðan þessum spurningum er ósvarað þá eru allar aðgerðir og umræða ómarkviss.

Þá þarf meira til en að búa til rafmagn, herra forseti, við þurfum æðar líkt og líkaminn til þess að flytja orku á milli staða. Við þurfum að treysta betur flutning og dreifikerfi raforku í landinu, tengja betur lykilsvæði og tryggja afhendingaröryggi raforku um land allt. Fyrirséð er að ljúka þurfi endurnýjun á meginflutningskerfi raforku sem liggur í kringum landið enda er byggðalínan orðin hálfrar aldar gömul og raforkunotkun hefur margfaldast frá því að hún var byggð. Einnig þurfum við að geta flutt orku frá einum stað til annars komi til eldgoss eða jarðskjálfta sem hafa áhrif á orkuinnviði landsins. Í áðurnefndri grænbók kom fram að leggja þyrfti fram þingsályktunartillögu um uppbyggingu flutningskerfis raforku á árinu 2022 og í henni þyrfti að taka afstöðu til fjölmargra beiðna um aukna flutningsgetu, samtengingar og betri stýringar. Sú tillaga er ekki komin fram og ég get ekki séð hana á þingmálaskrá á þessu þingi.

Orka verður sífellt stærri hluti af því hvernig við vöxum sem velferðar- og velsældarsamfélag. Mikilvægast af öllu er að taka ákvörðun um hvernig við viljum sjá landið og þjóð þróast til framtíðar. Ætlum við að nýta tækifærið sem blasir við okkur? Ætlum við að auka orkuöflun, ráðast í orkuskipti og ekki síður nýta landfræðilega stöðu landsins til orkuskipta á skipum og flugvélum? Því spyr ég ráðherra hver sé framtíðarsýnin. Hvernig ætlum við að tryggja nægt framboð á raforku um allt land til orkuskipta? (Forseti hringir.) Hver eru framtíðaráform ráðherra varðandi uppbyggingu á meginflutningskerfi raforku á Íslandi? Ég veit að þetta eru stórar spurningar, en við verðum einfaldlega að fara að svara þeim.