Orkuöryggi.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fyrir hans svör. Það er greinilegt að ráðherrann er meðvitaður um mikilvægi orkuöryggis á landinu.
Orkuöryggi er ekki bara val heldur nauðsyn. Með því að fjárfesta í grænni orku og tileinka okkur nýja tækni getum við hjálpað til við að tryggja orkuframtíð okkar og tryggja að við leggjum okkar af mörkum til að vernda jörðina fyrir komandi kynslóðir.
Smávirkjanir eru mikilvægar til þess að styrkja dreifikerfi raforku um landið en allt að fimmtungur allrar raforku sem Rarik dreifir til viðskiptavina kemur frá smávirkjunum víða um land. Smávirkjanir gegna einnig lykilhlutverki á landsbyggðinni víða um land þar sem skortur á framboði á raforku er farinn að standa byggðarþróun fyrir þrifum. Smávirkjanir stuðla ekki bara að auknu orkuöryggi landsins heldur geta þær einnig verið mikilvægur þáttur í að tryggja vaxtarmöguleika landsbyggðarinnar. Mig langar því að nýta tækifærið hér og spyrja hæstv. ráðherra út í skoðun hans á smávirkjunum og hver framtíðaráform hans eru varðandi þær.
Mig langar líka rétt að koma inn á nokkur atriði sem hafa komið fram í þessari góðu umræðu í dag. Hér var aðeins tæpt á stóriðju og þörf hennar á orku. En það má heldur ekki gleyma því að ein af forsendum þess að við búum við það flutningskerfi sem við höfum í dag er stóriðjan. Svo má líka rökræða um það hvað stóriðja er. Er það laxeldi? Er það flugvöllurinn í Keflavík eða eingöngu álver? En við þurfum að virkja meira, það er ekkert flókið. Vissulega þurfum að fara betur með orkuna okkar og minnka tap en allar þjóðir heimsins gera ráð fyrir verulega aukinni orkuþörf til framtíðar. Ætti Ísland eitthvað að vera undanþegið því? Við þurfum fjölbreyttar leiðir, vissulega. Við þurfum vatnsaflsorku, vindorku, jarðvarma, sjávarföll. Það er engin ein lausn töfralausnin og eflaust eigi eftir að koma einhverjar fleiri fram í framtíðinni sem okkur órar ekki fyrir í dag. (Forseti hringir.)
En ég vil bara þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir umræðuna og öllum þeim sem tóku þátt.