hungursneyðin í Úkraínu.
Virðulegi forseti. Það er mér sérstök ánægja að mæla hér fyrir nefndaráliti sem mikill samhljómur er um í hv. utanríkismálanefnd. Álitið er auðvitað í samræmi við viðtökurnar í þinginu sem hafa verið mjög góðar og eins og í öðrum málum er varða Úkraínu er hér breið þverpólitísk samstaða um þetta mál. Eins og ég hef áður rakið í ræðustól og kemur fram í álitinu er um að ræða tillögu um að Alþingi lýsi því yfir að hungursneyðin í Úkraínu, sem stóð yfir frá 1932–1933, hafi verið hópmorð. Hungursneyðin í Úkraínu var af völdum alræðisstjórnar Stalíns og dró milljónir Úkraínumanna til dauða en Rússar hafa alla tíð neitað því að um hópmorð eða þjóðarmorð hafi verið að ræða.
Nefndin leggur áherslu á að með því að við samþykkjum tillöguna svari Alþingi ákalli Úkraínu um að ríki heimsins lýsi því yfir að Holodomor hafi verið hópmorð en fjölmörg ríki hafa þegar brugðist við ákallinu. Það sé mikilvægt að senda skýr skilaboð um þessa hörmulegu atburði í mannkynssögunni og vekja á þeim athygli til að koma í veg fyrir að þeir endurtaki sig. Slík skilaboð um voðaverk fyrri tíma geta styrkt viðleitni alþjóðasamfélagsins til að tryggja framgang og vernd grundvallarmannréttinda og frelsis um allan heim.
Nefndin leggur því til að tillagan verði samþykkt. Undir tillöguna rita, auk þeirrar sem hér stendur, Bjarni Jónsson, formaður nefndarinnar, Njáll Trausti Friðbertsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Logi Einarsson, Birgir Þórarinsson og Jakob Frímann Magnússon. Gísli Rafn Ólafsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, lýsti sig samþykkan álitinu.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég ræði hér málefni Úkraínu úr þessum stól og það er ekki laust við að ég sé örlítið hrærð yfir því að fá að mæla fyrir þessu máli og yfir áliti okkar nefndarinnar, hrærð yfir samstöðu okkar alþingismanna í þessu hjartans máli Úkraínumanna, hugrökku þjóðinni sem berst nú fyrir hlutum sem okkur þykja orðið sjálfsagðir, berst fyrir frelsi og fyrir mannréttindum og berst gegn ofríki og stríðsglæpum þjóðar sem hefur áður beitt þjóðina slíku ofbeldi.
Virðulegi forseti. Ég legg því til að tillagan verði samþykkt.