rafbyssuvæðing lögreglunnar.
Virðulegur forseti. Það er ágætt að fá tækifæri til að fara aðeins yfir þetta mál. Niðurstaðan hjá umboðsmanni Alþingis var mjög skýr: Það voru ekki brotin nein lög. Stjórnarskráin var ekki brotin. Það er enginn vafi um það að ráðherra, dómsmálaráðherra í þessu tilfelli, hafði fulla heimild til að taka þessa ákvörðun.
Þá er þetta spurningin um það hvenær ber að bera reglugerðir eða aðrar reglur upp á ríkisstjórnarfundum sem mikilvæg stjórnarmálefni. Þá er ágætt að líta til forsögunnar í þessu máli og ég ætla að fara aftur til ársins 1999 þegar settar voru reglur um vopnaburð lögreglu þar sem ákveðið var að heimila lögreglustjórum að nota m.a. rafbyssur við sérstakar aðstæður. Með öðrum orðum; heimildin var þegar til staðar um að hafa þessi rafvarnarvopn í röðum lögregluna sem hluta af þeirra varnarbúnaði. Síðar voru teknar ákvarðanir um það að setja skotvopn í alla lögreglubíla þannig að lögreglan hefði í sínum daglegu störfum aðgang að skotvopnum ef þörf væri á því. Aldrei nokkurn tímann í þessu ferli var það borið undir ríkisstjórn, reyndar að hluta til ekki einu sinni borið undir ráðherra, enda ákvörðunin hjá lögreglunni. Eftir mikla hvatningu frá lögreglunni, frá lögreglustjórum, frá Landssambandi lögreglumanna og Lögreglufélagi Reykjavíkur þá varð ég við því að samþykkja í raun þá ósk þeirra að rafvarnarvopnin yrðu innleidd sem hluti af varnarvopnum lögreglu í sínum daglegu störfum. Það gerði ég með öryggi lögreglumannanna í huga.
Ég tel að þetta hafi ekki verið ákvörðun sem þurfti að bera upp við ríkisstjórnina. Við ræddum þetta mál, ég og forsætisráðherra, þann dag sem ég undirritaði þessa reglugerð (Forseti hringir.) og að sjálfsögðu tók ég vel í það að ræða þetta á ríkisstjórnarfundi, enda var það gert.