Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 86. fundur,  23. mars 2023.

rafbyssuvæðing lögreglunnar.

[10:52]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég spurði dómsmálaráðherra hvort hann hefði látið forsætisráðherra vita að reglugerðin hefði þegar verið undirrituð fyrir eða eftir að forsætisráðherra sagði að það þyrfti að ræða málið betur. Það var spurningin mín, mjög einföld. Ég fæ einhverja orðasúpu um að það hafi ekki verið talað við ríkisstjórn um það þegar skotvopn voru leyfð. Ég vil bara hvetja hæstv. dómsmálaráðherra til að sanna það, senda þinginu gögn sem sýna ótvírætt að það hafi ekki verið neitt samráð um það þegar reglugerð var sett um að lögreglan mætti vera með skotvopn í bílunum sínum. Ég trúi nefnilega ráðherra ekki þegar hann segir það, svo einfalt er það.

Ég spurði í öðru lagi hvort ráðherra fyndist þetta í alvörunni ekki vera alvarlegt mál og eitthvað sem þyrfti að ræða við þing og þjóð. Það er ekkert búið að tala við þingið, það var eitt af því sem forsætisráðherra sagði. Það er ekki, eins og umboðsmaður sagði, nóg að tala um málið eftir á. (Forseti hringir.) Það virkar ekki þannig og samráð virkar ekki þannig. Það eru ekki enn þá komnar rafbyssur í hendurnar á lögreglu. (Forseti hringir.) Eins og dómsmálaráðherra sagði þá er von á því kannski strax eftir páska. Er þá ekki enn þá tækifæri til að stöðva þetta?