rafbyssuvæðing lögreglunnar.
Virðulegur forseti. Jú, það eru alltaf tækifæri hér í þessum sal og á vettvangi framkvæmdarvaldsins til að taka ákvörðun um að breyta hlutunum og hætta við þetta, en það kemur bara ekki til greina af minni hálfu. Þetta er ekki enn komið í hendur lögreglu, það er alveg rétt, vegna þess að auðvitað krefst það mikillar þjálfunar og undirbúnings. Þó það nú væri, það er verið að vanda til verka og þannig verður þetta unnið.
Hvort mér finnist þetta alvarlegt mál? Nei, mér finnst þetta ekki alvarlegt mál. Mér finnst þetta í raun ekkert stórmál miðað við þær reglur sem giltu í landinu, giltu hjá lögreglunni. Þær reglur voru nefnilega í gildi að það var full heimild til að nota þessi varnarvopn. Þannig að þessi ítrekun á því hvort ég sé sammála því að þetta sé hluti af daglegum búnaði, það er ekki stórkostleg breyting. Og samráð í ríkisstjórn um slíka ákvörðun, sem þegar var búið að taka, var ekki tilefni til að hafa að mínu mati. (Forseti hringir.) Hvort ég talaði við forsætisráðherra fyrir eftir að ég undirritaði reglugerðina, við áttum samtal, ég og forsætisráðherra. (Forseti hringir.) Þá var ég búinn að tilkynna að ég væri búinn að skrifa undir þessa reglugerð. (Gripið fram í: Ertu þá að tala um sama dag?)