Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 86. fundur,  23. mars 2023.

hungursneyðin í Úkraínu.

581. mál
[11:16]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég fagna því að við séum að greiða atkvæði um þessa tillögu í dag. Hún er gríðarlega mikilvæg. Það er að verða öld frá sovésku hungursneyðinni, Holodomor, sem tengist úkraínsku þjóðinni, og þeirri neyð sem skapaðist þar. Markmið sovéskra stjórnvalda með sveltinu á sínum tíma var raunverulega hluti af því að bæla niður úkraínska þjóðarvitund. Þess vegna er það mjög táknrænt og mikilvægt að þetta komi hér. Rússnesk stjórnvöld í dag hafa reynt að kæfa þetta mál og alþjóðaviðurkenningu á því á síðustu áratugum. Þess vegna fagna ég mjög að þetta sé komið fram. Þetta mál hefur verið rætt töluvert í NATO-þinginu á síðustu árum. Það er mjög mikilvægt að skapa vitund meðal hins frjálsa heims vestrænna landa, reyndar um allan heim, á þessu máli og mikilvægi þess að við viðurkennum þennan hræðilega atburð sem varð þegar milljónir Úkraínumanna og fleiri sovéskra borgara vítt og breitt um gömlu Sovétríkin voru drepnar með svelti og öðrum hætti.