almannatryggingar og félagsleg aðstoð.
Virðulegur forseti. Þarna er ég að gera breytingu á frítekjumarki ellilífeyris og þarna er bara búið að uppreikna samkvæmt vísitölu heildarlauna opinberra starfsmanna. Og hverju munar þarna? Jú, 140%. Í staðinn fyrir að vera 25.000 kr. á mánuði ætti þetta að vera 60.000 kr. mánuði. Þetta eru ekkert rosalega háar upphæðir en þetta skilar sér, til hverra helst? Jú kvenna, vegna þess að það eru þær sem eru með minnstan lífeyri og frítekjumark. Þetta á að vera sjálfsögð breyting. Þetta er kjaragliðnun undanfarinna ára. Einhverra hluta vegna virðist alltaf verið að auka kjaragliðnun en ekki að minnka hana. Þannig að segið já við þessu. Ég sé að þið segið nei. Það er greinilegt að þið viljið hafa kjaragliðnunina svona.