almannatryggingar og félagsleg aðstoð.
Herra forseti. Í þessari breytingartillögu er lagt til að feðra- og mæðralaun verði ekki til að skerða greiðslur til lífeyristaka, enda eru þær ætlaðar til að mæta viðbótarkostnaði einstæðra foreldra vegna framfærslu barna. Þetta er auðvitað augljóslega mikið réttlætismál og það gleður mig að þingheimur skuli sameinast um að styðja þessa tillögu. Það er ekki oft sem breytingartillögur frá minni hlutanum hljóta náð hjá meiri hlutanum með þessum hætti. Þannig að jafnvel þó að allar breytingartillögur sem sameinaður minni hluti lagði hér fram hafi verið virkilega mikilvægar og ég hefði viljað fá þær allar samþykktar þá gleðst ég yfir þessu skrefi. Tré fellur sjaldnast við fyrsta högg en baráttan heldur áfram.