Orkuveita Reykjavíkur.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Orkuveitu Reykjavíkur. Markmið frumvarpsins er að tryggja skýra lagaheimild Orkuveitu Reykjavíkur til að eiga hlut í félögum sem tengjast geymslu koldíoxíðs og annarra vatnsleysanlegra gastegunda í jörðu.
Frumvarpið var samið í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Áform um lagasetninguna og drög að frumvarpi voru kynnt til umsagna í samráðsgátt stjórnvalda. Í samráðskafla greinargerðar er greint frá umsögnum og viðbrögðum við þeim.
Orkuveita Reykjavíkur hefur í samstarfi við Háskóla Íslands auk annarra háskóla og rannsóknastofnana þróað sérstaka aðferð við geymslu koldíoxíðs í jörðu, svokallaða Carbfix-aðferð. Aðferðin felst í því að leysa upp koldíoxíð í vatni og dæla því niður í basaltsberggrunn þar sem það steinrennur við náttúrulegt ferli. Við þróun tækninnar var stuðst við rannsóknir, búnað, aðstöðu og þekkingu Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfélaga. Aðferðin var aðallega þróuð í Hellisheiðarvirkjun, sem er jarðhitavirkjun á Hengilssvæðinu og rekin af Orku náttúrunnar ohf., dótturfélagi Orkuveitu Reykjavíkur. Mikilvægt er að stuðla að framgangi og þróun Carbfix-verkefnisins sem byggist á hugviti sem hefur orðið til hjá Orkuveitu Reykjavíkur, en talið er að aðferðin kunni að reynast mikilvægt framlag í baráttunni við loftslagsbreytingar.
Í frumvarpinu er lögð til breyting á lögum nr. 136/2013, um Orkuveitu Reykjavíkur, sem felur í sér að tilvísun til geymslu koldíoxíðs og annarra vatnsleysanlegra gastegunda í jörðu bætist við það ákvæði laganna sem fjallar um þá starfsemi sem Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfélögum er heimilt að stunda. Við vinnslu frumvarpsins var haft sérstakt samráð við Orkuveitu Reykjavíkur og innviðaráðuneytið.
Orkuveita Reykjavíkur er í eigu Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga um Orkuveitu Reykjavíkur. Sú meginregla hefur verið talin gilda hér á landi að sveitarfélögum er óheimilt að stunda atvinnurekstur í hagnaðarskyni án lagaheimildar, sbr. m.a. 65. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011.
Þróun aðferðafræði Carbfix hefur verið álitin tengjast kjarnastarfsemi Orkuveitu Reykjavíkur enda dregur hún úr mengun sem stafar frá virkjunum. Að auki var við þróun aðferðarinnar byggt á þekkingu og rannsóknum Orkuveitu Reykjavíkur. Aðferðin hefur því verið talin rúmast innan starfsheimilda Orkuveitunnar og dótturfélaga samkvæmt núgildandi lögum nr. 136/2013, en með skýru lagaákvæði þess efnis eins og frumvarp þetta gerir ráð fyrir eru tekin af öll tvímæli.
Virðulegi forseti. Nú er það þannig að ég hef ákveðna sögu í þessu máli. Ég var um tíma í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur og í borgarstjórn Reykjavíkur og hafði forgöngu um það hér á þingi að breyta þessum lögum, sem voru samþykkt, ef ég man rétt, á afmælisdeginum mínum 2013, til að takmarka heimildir Orkuveitu Reykjavíkur til að taka þátt í atvinnustarfsemi. Áður var sú heimild mjög víðtæk og var fyrirtækinu í rauninni heimilt að eiga fjármálastofnanir og í rauninni allt að auki, allt það sem nýtti orku. Um tíma var fyrirtækið í risarækjueldi, hörverksmiðju og ljósmyndabanka og hvað það nú var ekki, sem var ekki gott. Ég verð að viðurkenna að mér finnst svolítið langt til seilst að telja að það sé ekki lagaheimild til að sinna þessu og er það alveg í samræmi við þær áherslur sem ég hafði sem stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur og ef ég man rétt var upphafið að þessu ferli þar, þ.e. að leggja áherslu á rannsóknir og þróun og starfsemi sem tengdist kjarnastarfseminni, enda finnst mér hér um kjarnastarfsemi að ræða. En hins vegar er það svo, virðulegi forseti, að það eru uppi áhöld um hvort þetta rúmast innan laganna eins og ég greindi frá hér áður og þess vegna hef ég fallist á það að flytja frumvarp til að taka af öll tvímæli.
Virðulegi forseti. Ég hef rakið hér meginefni frumvarpsins og kannski eitthvað aðeins fleira. Ég legg til að því verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. atvinnuveganefndar.