Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 86. fundur,  23. mars 2023.

aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2024--2028.

860. mál
[13:34]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir sína framsögu og ég verð að segja að það gleður mig virkilega að a.m.k. sé ákveðinn grunnur sem lagt er af stað með hér, að eldra fólkið okkar sé virði en ekki byrði. Hér er líka talað um hversu mikilvægt það er að koma í veg fyrir að eldra fólk félagslega einangrist heima. Þetta vekur mér ákveðnar spurningar, spurningarnar um það hvers vegna hæstv. ráðherra er ekki einmitt að byggja líka á því að gefa eldra fólki kost á því að vera lengur á vinnumarkaði án þess að skerða það vegna atvinnutekna og þá er ég ekki að miða við þetta þak. Það er þak inn í almannatryggingakerfið sem kemur í veg fyrir að þeir sem eru með milljónir á mánuði geti nýtt sér það öryggisnet sem almannatryggingakerfinu er ætlað að vera. Þetta er hugsað til þess — og eins og hæstv. ráðherra bendir er stuðullinn í rauninni mun verðmætari hjá eldra fólki. Það er verðmætara með þennan stuðul, 1,3, heldur en jafnvel yngra fólk með stuðulinn 0,8. Þess vegna velti ég því fyrir mér hvernig stendur á því að það er ekki tekið heildstætt á því líka, og bara farið alla leið, að á Íslandi sé gott að búa fyrir eldra fólk, það fái frelsi til þess einmitt að koma í veg fyrir að einangrast, til þess einmitt að vera á vinnumarkaði án þess að vera skert í allt að 86% eins og kemur í ljós að er gert ef það fer að vinna og fer yfir þetta svokallaða frítekjumark.

Svo er það hitt, að ég veit að í Árbænum hefur verið stunduð leikfimi þar sem ungar konur hafa í sjálfboðavinnu boðið eldra fólki að koma tugum saman, upp í 60, 70 fullorðnir einstaklingar hafa komið þar í leikfimi, komið þar til þess að virkja sig félagslega og alla vegana. Það var óskað eftir fjárstuðningi hér frá þessu háa þingi, frá löggjafanum hér, til að styðja við þetta þannig að ekki þyrfti að fara að gjaldsetja þetta sem hefði sent fátækasta eldra fólkið heim. Þannig að ég spyr hæstv. ráðherra: Erum við ekki eiginlega tala sama tungumálið hvað það varðar? Er hæstv. ráðherra tilbúinn til að líta pínulítið út fyrir og víðara og taka þetta algerlega heildstætt?