aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2024--2028.
Virðulegi forseti. Ég verð nú að segja að ég er afskaplega glöð yfir því að við séum núna loksins að líta augum aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk. Ég tek undir það sem hér var sagt rétt á undan mér, að þetta er sannarlega metnaðarfull aðgerðaáætlun enda á hún að vera það, þetta er mikilvægur hópur sem við erum hér að fjalla um og mjög margt hérna sem manni hefur þótt sjálfsagt en okkur hefur einhvern ekki auðnast endilega að stilla saman strengi.
Ég ætla aðeins að fara líka yfir þessar greinar sem hér eru undir og mér þykir ástæða til að drepa aðeins á. Það er einmitt þetta með aðgerðaáætlun A.1. Það sem hefur verið held ég hvað erfiðast í því að gera þetta eru þessir veggir á milli ráðuneyta og sveitarfélaga. Þess vegna er líka afskaplega mikilvægt að hér eru tveir ráðherrar sem þessi málaflokkur snýr fyrst og fremst að, þ.e. heilbrigðisráðuneyti og félags- og vinnumarkaðsráðuneyti. En sannarlega eru fleiri hér undir, eins og var nefnt og kemur annars staðar fram varðandi menntun, þ.e. ráðherrar menntamála, tveir.
Það er gríðarlega mikilvægt að við getum verið heima sem lengst, viljum við það, en það er líka mikilvægt að við getum fengið önnur úrræði ef við svo kjósum. Í þessari aðgerð A.1 er einmitt verið að ræða um þetta með að það sé eftirsóknarvert og spennandi að vinna með eldra fólki á hinum ýmsu stöðum, ekki bara inni á hjúkrunarheimilum eða í dagdvöl heldur líka heima og annars staðar þar sem eldra fólk kemur saman. Það er jú þannig, eins og hér hefur verið reifað aðeins, að fólk er að koma saman mjög víða og það sannarlega kemur í veg fyrir ótímabæra öldrun, getum við kallað það, að fólki hraki fyrr, ef þjónustan er í lagi.
Það er ánægjulegt að sjá að hér á að taka þessi þróunarverkefni í samþættingu föstum tökum og leita samtals við alla þá aðila sem að þessu koma. Og eins og segir í aðgerðaáætlun A.2 um markmið endurhæfingarteyma heima þá finnst mér það líka mjög mikilvægt sem hér er lagt upp með að verði til þriggja mánaða. Það er auðvitað til þess að koma fólki enn þá betur í virkni. Það getur eitt og sér skipt máli til að fólk komist í gang aftur og geti kannski verið í stærri hópi, komist út úr ákveðinni hugsanlega einangrun. Þetta er persónumiðuð þjónusta og þessi fyrirmynd er komin frá, eins og segir hér, frá Fredericia í Danmörku. Þar hefur verið sýnt fram á mjög jákvæðan árangur og þetta hefur verið innleitt með svipuðum hætti mjög víða.
Áfram hér í A.3 er þetta varðandi það að fólk geti komið saman í svokallaðri dagdvöl. Það hefur verið sýnt fram á að það styrkir auðvitað virkni fólks. Það getur líka dregið úr þörfinni fyrir heimaþjónustu á dagtíma. Hennar getur verið þörf á öðrum tímum, sannarlega. Þetta er auðvitað partur af því að vera á meðal fólks og geta svo samt sem áður jafnvel búið einn heima en þá ertu í þessum félagsskap. Hér er lagt til að farið verði „markvisst í að afla upplýsinga, ráðast í greiningarvinnu og skýra óljós ábyrgðarskil til að hámarka gagnsemi úrræðis á landsvísu.“ Svo að ég vitni, með leyfi forseta, í A.3. Það skiptir líka máli að við vitum auðvitað hvert við erum að fara, að við vitum nákvæmlega hvað við erum að gera. Það kannski því miður liggur ekki nægilega vel fyrir. Margt af því sem hér er verið að leggja upp með þurfum við, líka í ljósi þeirrar reynslu sem verður til vegna þessarar aðgerðaáætlunar, að fylgja talsvert eftir.
Í aðgerð A.5 er verið að leggja til samræmt matskerfi til að tryggja þessa samfelldu þjónustu og hér er nefnt InterRAI home care. Hvort sem það verður ofan á eða ekki þá held ég að það sé afskaplega mikilvægt einmitt að hafa eitthvert svona miðlægt kerfi og matstæki þannig að það sé hægt að meta þjónustuþörfina, færa hana á milli þjónustustiga þannig að þjónustan bara einhvern veginn rúlli dálítið snurðulaust. Og að þetta sé skráð í gagnagrunna, það skiptir miklu máli, sérstaklega á milli, eins og ég sagði áðan, heilbrigðis- og félagsþjónustunnar þannig að upplýsingarnar geti farið á milli. Það hefur jú verið það, að mínu mati a.m.k., hafandi bæði starfað í sveitarstjórn og hér á þingi, sem dálítið hefur stoppað þessi mál.
Hér er líka í A.6 verið að tala um að flestir íbúar sæki sér þjónustu til sveitarfélaga, þ.e. þetta fyrsta stig. Og eins og hæstv. ráðherra kom inn á hérna með þörfina fyrir heimaþjónustu eykst hún eðli máls samkvæmt með hækkandi aldri. Heilsubrestur er kannski meginástæðan fyrir því og þess vegna er gott að það eigi að opna hérna sameiginlega beiðnagátt þar sem hægt er að sækja um þjónustu og þar taki þverfaglegt teymi við þannig að það sé hægt að meta hvers konar þjónustu sé hægt að veita.
Ég gæti talað hér lengi. Það var nú Ólafur Þór Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður og félagi minn, sem leiddi þessa vinnu og hann var óþreytandi að tala hér um málefni eldra fólks meðan hann sat á þingi og ég tel mig sjá fingraför hans á þessu.
Varðandi þetta með heilsueflandi starf þá tel ég að það sé eitt af því mikilvægasta. Við sem erum á mínum aldri erum væntanlega flest okkar heilsuhraustari heldur en sú kynslóð sem nú er á öldrunarheimilum eða hjúkrunarheimilum, sem sleit sér mikið út á stuttum tíma jafnvel, eða löngum tíma ef því er að skipta. Alla vega tel ég að við séum kannski mörg okkar heilsuhraustari. Ég held að þetta sé eitt af því sem er mjög mikilvægt að fókusa dálítið mikið á, heilsueflandi stuðning, því að það skiptir máli varðandi bæði lífslöngun og það líka að geta notið þess að vera í daglegu starfi með fólk í kringum sig þannig að maður sé sæmilega heilsuhraustur. Ég gæti alveg talað hérna áfram og tek líka undir varðandi menntunina, ráðgjöf og þjónustu.
Ég vil líka segja það hér að ég held að það sé mikilvægt, eins og kemur í D.1, að á meðan þessari aðgerðaáætlun stendur þá á samhliða að vinna að endurskoðun á lögunum um þjónustu við þennan hóp. Ég held að það sé mikilvægt og að við gerum samtímaáætlun um hvort það þurfi að breyta lögum eða einhverju slíku í framhaldinu.
Svo langar mig bara að segja, af því að ég hef aðeins fengið að fylgjast með tilraunaverkefni sem er í mínum heimabæ, Fjallabyggð, og af því ég veit nú að ráðherrarnir tveir sem hér sitja, ásamt háskólaráðherra, eru einmitt að fara norður í næstu viku þar sem á að opna það verkefni formlega, Hátindur 60+, að þegar ég leit á þetta fyrst þá hugsaði ég: Vá, það eru bara tvö ár fyrir mig í 60. Þannig að mér fannst einhvern veginn: Já, er það? Er þetta svona ungt? En auðvitað er það þannig að við erum í misjöfnu ástandi og við þurfum misjafnlega snemma á þjónustu að halda. Svo er það líka þannig að maður getur farið inn í alls konar þjónustu án þess endilega vera veikur eða þurfa beinlínis á því að halda, öðru en, eins og ég hef verið að segja hérna, að taka þátt í gönguferðum, í samveru í íþróttahúsum eða hvað það nú er. Þessu er líka ætlað að stuðla að vellíðan fólks með skilvirkri þjónustu og afþreyingu. Hún er kannski ekki síður mikilvæg þessi afþreying og það að vera meðal fólks. Þannig að ég er spennt að fylgjast með því einmitt hvernig það verkefni þróast og tel að það sé afrakstur af þessu samtali sem hefur átt sér stað í ansi mörg ár en er kannski loksins að verða að veruleika.