Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 86. fundur,  23. mars 2023.

aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2024--2028.

860. mál
[14:06]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég get alveg tekið undir það og það er mjög mikilvægt einmitt að við horfum á það, á hvaða aldri sem við erum, að á hvaða forsendum sem við þurfum, langar, eða hvernig það atvikast, að breyta um búsetu þá auðvitað skiptir það gríðarlega miklu máli að viðkomandi einstaklingur upplifi einmitt að hann sé heima, hann sé frammi í borðstofu heima, eða hvar það nú er, í setustofu eða inni á sínu herbergi eða í lítilli þjónustuíbúð eða hvernig sem það allt saman atvikast. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt. Auðvitað rákum við talsvert mikið af dvalarheimilum hérna einu sinni. Þau eru dálítið mikið að hverfa og við hafa tekið hjúkrunarheimili. Þjóðin er að verða mun eldri þegar hún fer og sækir sér þá þjónustu. Þessu er einmitt verið að breyta þannig að við getum vonandi haft úr fleiri tegundum af íverustað að velja, ef við getum orðað það þannig, fleiri tegundum af heimilum og getum notið þess. Af því að ég leyfði mér að vitna hérna í Hátind 60+ áðan þá er það einmitt hluti af því að reyna að mæta fólki þar sem það er með fjölbreyttum lausnum sem er bæði stuðningsþjónusta, heimahjúkrun, sveigjanleg dagdvöl, eða hvað það nú heitir, þangað sem það flytur. Þannig að ég held að þetta skipti bara gríðarlega miklu máli. Ég ætla alla vega að vona að þegar kemur að mér þá líði mér þannig að ég sé að velja mér nýjan íverustað.