aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2024--2028.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Ég er nú ekki svona ljóðmælt. Mikið les ég af ljóðum en ég kann lítið að fara með þau. Inntakið í þessari aðgerðaáætlun er í rauninni, eins og hér var sagt í upphafi, að eldra fólk er virði en ekki byrði. Maður þarf bara dálítið að setja sig í þessi spor, hvar maður vildi sjálfur vera. Ég hef nú stundum sagt þegar ég hef verið löt að hreyfa mig að markmiðið sé nú samt að getað klætt mig í sokkana þegar ég er sjötug. Og það er alveg vert verkefni af því að það eru ekki allir sem það geta. En með hjálp og stuðningi, í hverju svo sem hann felst, þá einmitt er það tækifæri til að gera líf okkar auðugra, einfaldara. Þetta er bara leiðin til þess að taka utan um alla þessa þjónustu, alveg sama hvert hún nær. Ég tek alveg undir það sem hv. þingmaður sagði. Ég auðvitað kem úr litlum bæ þar sem maður rápaði á milli og stórfjölskyldan kom oft saman og amma var alltaf með súpu á undan í hádeginu og svo fiskinn á eftir o.s.frv. Þetta hefur breyst eðli máls samkvæmt. Tíðarandinn breytist og við erum öll einhvern veginn dálítið uppteknari. Við sinnum fólkinu okkar kannski minna en við vildum oft gera og það endurspeglast í mjög mörgu. Mér finnst þetta vera aðeins að ná aftur til þess að við viljum taka utan um fólk með þeim hætti að því líði betur og það sé partur af. Það finnst mér skipta miklu máli og ég hlakka mjög mikið til að fylgjast með í rauninni hvernig okkur tekst að vinna þetta áfram og treysti auðvitað ráðherrunum til að fylgja því eftir. Eins og ég sagði hér áðan á að meta þetta samhliða, ekki bíða eftir að þessi fjögur ár líði heldur vinna þetta jafnóðum og það held ég að skipti miklu máli.