Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 86. fundur,  23. mars 2023.

Land og skógur.

858. mál
[15:10]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmönnum fyrir þátttökuna í þessari umræðu og ég treysti því að hv. umhverfis- og samgöngunefnd vinni þetta vel og þakka líka bara góðar óskir gagnvart málinu sem slíku og að það sé litið á þetta mál sem framfaramál. Ég held að það sé sem betur fer orðið svo að það sé nánast óumdeilt að í meginatriðum sé þetta framfaraskref. Síðan eru auðvitað ýmis álitamál sem þarf að taka til skoðunar á vettvangi nefndarinnar og allnokkur hafa verið rædd hér af hv. þingmönnum sem hér hafa tekið þátt. Ég treysti hv. umhverfis- og samgöngunefnd algerlega til að taka þessi mál til skoðunar sem hér eru nefnd.

Mig langar þó að segja kannski með almennum hætti um það sem lýtur meira að því hvaða hlutverk löggjöfin sjálf hefur og að hve miklu leyti ráðlegt er að binda til að mynda samráð, samtal og annað slíkt beinlínis inn í lagatextann. Ég held að nefndin ætti að skoða vel hvort það færi betur á því að hnykkja á slíku í nefndaráliti af því að það getur verið snúið að hafa ekki yfir að ráða þeim sveigjanleika sem framtíðarbreytingar geta falið í sér og þurfa þá mögulega að fara til Alþingis með nýja sýn og nýtt fyrirkomulag. Samstarf og samráð er í eðli sínu eitthvað sem á að vera eins lífrænt og sveigjanlegt og hægt er. Ég held að í þessum málaflokkum báðum, hvort sem við erum að tala um landgræðslu eða skógrækt, og við hv. þingmaður höfum áður rætt þessi mál hér í þingsal, byggjum við á heilmikilli hefð samstarfs og samráðs um tiltekin verkefni sem hér hafa verið nefnd o.s.frv. og ég held að það fari vel á því að gera ráð fyrir því að svo verði áfram, þó að til þess sé vísað með ítarlegum hætti í nefndaráliti, þ.e. að samstarfið og samráðið sem vænt er á vettvangi nýrrar stofnunar byggi á gömlum merg og traustum samskiptum við bændur og landeigendur.

Síðan voru það spurningar og vangaveltur sem hv. þingmaður dró sérstaklega upp varðandi 5. gr. og þessi sérstöku heimildarákvæði um að semja við aðra aðila og krefja síðan þá aðila um upplýsingar o.s.frv. Hv. þingmaður veltir því fyrir sér hvort þarna geti mögulega verið um að ræða of óljósa heimild til einhvers konar framsals eða ráðstöfunar verkefna o.s.frv. Í raun og veru er hugsunin í ráðuneytinu sú að þetta sé bara almenn heimild til að gera samninga um minni háttar verkefni. En það er full ástæða til, ef þetta er ekki skýrt svona við fyrstu sýn, að skerpa á þessu betur í meðförum nefndarinnar og ég held að það sé bara til góðs.

Hv. þingmaður spyr sérstaklega um umræðu sem lýtur að þátttöku í verkefnum og samstarfsverkefnum sem er ekki fjallað um beinlínis í þessum lagabókstaf hér. Ég held að það hljóti að verða hluti af því sem rætt verður í meðförum nefndarinnar og tengist því sem þingmaðurinn er líka að velta fyrir sér um dreifingu starfseminnar, því hversu nálægt einstakar starfsstöðvar eru starfseminni. Eins og fram hefur komið eru þetta allt í allt 16 starfsstöðvar sem eru auðvitað margar og spurningin er enn og aftur með sömu tilvísun um sveigjanleikann til að ákveða hvar sé best að staðsetja verkefnin hverju sinni. Mín tilfinning er sú, eftir að hafa verið í samstarfi og samráði við núverandi forstjóra þessara stofnana og þeirra sem best þekkja til í þessu, að þetta sé svolítið spurning um að treysta starfseminni, a.m.k. að gæta mjög vel að því að ef stigin verða skref þar sem hlutirnir eru skilgreindir með enn skýrari hætti þá verði þau stigin af mikilli varfærni, þau verði ekki til þess að hamla þróun eða hægja á henni með einhverju móti. Í greinargerðinni um aðalskrifstofu, og ég geri mér grein fyrir því að þetta er nokkuð óvenjuleg nálgun, segir bara, með leyfi forseta:

„Þá getur aðalskrifstofa nýrrar stofnunar verið á hvaða starfsstöð stofnunarinnar sem er en ekki er gert ráð fyrir að forstöðumaður hafi aðsetur á höfuðborgarsvæðinu.“

Ég held að þetta sé mikilvæg og ég held að þetta sé svolítið hugrökk nálgun vegna þess að það eru djúpar rætur bæði á Suðurlandi og Austurlandi, en um leið erum við svolítið að færa okkur út úr þeirri nálgun að stofnun sé fjórir veggir með skrifborði innan húss. Við eigum að vera meira bæði í hreyfanlegum og sveigjanlegum verkefnum, við getum unnið meira á netinu en um leið eru verkefni af þessu tagi algerlega háð því að þau séu bundin stund og stað. Mér finnst starfsfólk landgræðslu og skógræktar vera svolítið spennt fyrir því að nálgast þetta svona og segja meira að segja: Eigum við nokkuð endilega að líta á landgræðslu og skógrækt sem aðskilda málaflokka sem þurfi aðskilda meginskrifstofu og eitthvað slíkt? Eigum við ekki einmitt að segja nei við því og hætta að aðskilja þetta svona? Með því að flétta saman verkefnin í samræmi við áherslur, aðgerðaáætlanir og svoleiðis þá erum við í raun og veru líka að segja að það eigi að fjalla um hvort tveggja á sem flestum starfsstöðvum.

Þetta eru nú svona meira, virðulegi forseti, hugleiðingar út frá viðbrögðum hv. þingmanna. En ég þakka fyrir það að hér er um að ræða fyrst og fremst stuðning við málið og ég tel að hv. umhverfis- og samgöngunefnd geti gert þær umbætur á málinu sem skýri það. Hér er verið að stíga mjög mikilvægt skref fyrir loftslagsmál, fyrir líffræðilega fjölbreytni, fyrir jarðvegsvernd sem við mættum alveg tala meira um og tækifærin í þeim efnum sem eru ærin með þeirri þekkingu, reynslu og framsýni sem er fyrir hendi í báðum þessum stofnunum sem, ef þetta frumvarp verður að lögum, verða að nýrri og sterkri stofnun.