stjórn fiskveiða.
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi á þskj. 1353, máli nr. 861, en um er að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, svæðaskipting strandveiða. Þetta frumvarp er samið í matvælaráðuneytinu en með því eru lagðar til breytingar á ákvæði 6. gr. a laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, sem fjallar um strandveiðar.
Ástæða þess að ég greindi frá því í grein í Morgunblaðinu þann 26. júlí sl. að ég hygðist leggja til þessa lagabreytingu er einföld. Síðasta sumar voru strandveiðar stöðvaðar 21. júlí. Af því leiddi að ekki tókst að tryggja 48 daga á strandveiðum í þriðja skiptið í röð. Það varð niðurstaðan þrátt fyrir að aldrei hafi stærra hlutfalli leyfilegs heildarafla í þorski verið ráðstafað til strandveiða. Í kjölfarið höfðu margir strandveiðimenn samband við mig og lýstu yfir vonbrigðum með það að ekki hefði náðst að tryggja 48 daga á veiðum en jafnframt til þess að lýsa því að stöðvunin hefði mjög misjöfn áhrif á byggðir landsins. Því taldi ég og tel enn nauðsynlegt að löggjafarvaldið fái tækifæri til að fjalla um málið. Sem ráðherra sjávarútvegsmála alls landsins tel ég nauðsynlegt að gera breytingar á þessu fyrirkomulagi því að óbreyttum lögum verður niðurstaðan enn og aftur óbreytt núna í sumar, að stöðva þurfi strandveiðar þannig að hagsmunir tiltekinna svæða verði undir.
Ég geri mér grein fyrir því og hef heyrt það að mjög skiptar skoðanir eru hér í þinginu um þessi mál. Ég skil það vel, enda eru mismunandi hagsmunir eftir svæðum. Eðli máls samkvæmt þá kemur núverandi staða niður með mismunandi hætti eftir svæðum og þar með eftir kjördæmum. Ég tel eigi að síður ekki ganga annað við þessar kringumstæður en að koma með frumvarp til þingsins sem er viðleitni til þess að tryggja jafnræði í þessum litla hluta kerfisins okkar.
Samkvæmt frumvarpi þessu er lagt til að breytt verði ákvæði 6. gr. a sem fjallar um strandveiðar á þann veg að strandveiðar verði hér eftir svæðaskiptar. Í því felst að tekin verði upp skipting aflaheimilda við strandveiðar á landsvæði og tímabil. Einnig er lagt til að heimilt verði að flytja óveiddar aflaheimildir hvers landsvæðis og tímabils yfir á næsta tímabil innan fiskveiðiársins og ráðstafa þeim með þeim aflaheimildum sem koma til ráðstöfunar á því tímabili innan sama fiskveiðiárs. Þá er lagt til að heimilt verði að flytja óveiddar aflaheimildir fiskveiðiárs yfir á næsta ár.
Virðulegi forseti. Forsaga málsins er nokkuð lengri en með lögum nr. 22/2019 var gerð breyting á 6. gr. a í lögum nr. 111/2006, um stjórn fiskveiða. Breytingin var gerð að frumkvæði atvinnuveganefndar Alþingis. Ákvæði 2. mgr. 6. gr. a var þá breytt með þeim hætti að skylda ráðherra til að kveða á um skiptingu landsvæða og aflaheimilda á tímabil og landsvæði var felld brott. Þar með var aflaheimildum við strandveiðar ekki lengur skipt á landsvæði heldur miðað við að öll landsvæði veiddu úr sama pottinum, þ.e. þeim leyfilega heildarafla sem ráðstafað var til strandveiða. Atvinnuveganefnd taldi þá allar líkur á að þær aflaheimildir sem ráðstafað var til strandveiða myndu duga til að tryggja 12 daga í mánuði á veiðum. Það hefur aftur á móti ekki gengið eftir.
Afnám svæðaskiptingar aflaheimilda við strandveiðar hefur verið í gildi síðastliðin fjögur ár. Þetta fyrirkomulag hefur ekki reynst eins vel og vonast hafði verið til, sérstaklega ef litið er til jafnræðissjónarmiða þar sem afnám svæðaskiptingar aflaheimilda við strandveiðar hefur haft neikvæð áhrif á strandveiðar á Norðaustur- og Austurlandi. Þessi svæði eiga mest undir því að geta veitt seinni hluta sumars þegar þorskurinn er stærstur og verðmætastur.
Með frumvarpi þessu er því lagt til að breytt verði ákvæði 6. gr. a laga nr. 61/2006, um stjórn fiskveiða, á þann veg að strandveiðar verði hér eftir svæðaskiptar eftir landsvæðum. Þannig verði fyrirkomulagið að nokkru leyti sambærilegt og það var fyrir gildistöku laga nr. 22/2019. Þó verði skipting heimilda milli svæða með öðrum hætti en tíðkaðist fyrir 2019 en þegar strandveiðum var komið á árið 2009 var heimildum skiptum milli svæða, annars vegar með tilliti til hlutfallslegrar skiptingar byggðakvóta til landsvæða og hins vegar með jafnri skiptingu milli svæða. Því var ekki horft til þess við fyrra fyrirkomulag hve margir aðilar ráðgerðu að stunda strandveiðar frá hverju svæði eins og þetta frumvarp nú gerir ráð fyrir. Þessi breyting þýðir að ekki verður lengur veitt úr einum potti fyrir allt landið og veiðar stöðvaðar fyrir allt landið þegar heildaraflamagni hefur verið náð. Þess í stað verður heimildum dreift niður á landsvæði og tímabil með reglugerð sem ráðherra setur fyrir hvert ár.
Einnig er með frumvarpinu lagt til að heimilt verði að flytja óveiddar aflaheimildir hvers landsvæðis og tímabils yfir á næsta tímabil innan fiskveiðiársins og ráðstafa þeim með þeim aflaheimildum sem koma til ráðstöfunar á því tímabili innan sama fiskveiðiárs.
Þá er lagt til að heimilt verði að flytja óveiddar aflaheimildir fiskveiðiárs yfir á næsta fiskveiðiár og aflaheimildir sem fluttar eru frá eldra ári skuli tilheyra aflaheimildum þess fiskveiðiárs sem hófst næstliðinn 1. september.
Virðulegi forseti. Með framlagningu þessa frumvarps er fyrst og fremst verið að stuðla að auknu jafnræði. Við umfjöllunina og samráðið í samráðsgátt kom fram að það væri mikilvægt að tryggja að bátar allra strandveiðisvæða fái heimild til að róa í 12 daga í hverjum mánuði og að sú breyting myndi tryggja nauðsynlega sátt meðal strandveiðisjómanna. Með því að taka ákvörðun um að afnema skyldu Fiskistofu til að stöðva veiðar þegar heimildirnar eru uppurnar þá erum við í raun og veru að segja að þessar heimildir, strandveiðiheimildirnar, séu teknar út úr kerfi takmarkaðra heimilda sem byggja á vísindalegri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Það kemur að mínu mati ekki til greina. Frá upphafi hafa strandveiðar verið hugsaðar takmarkaðar eins og allar aðrar veiðar við landið og ég mun hér eftir sem hingað til fara að vísindalegri ráðgjöf um mínar ákvarðanir um leyfilegan heildarafla. En ég taldi fyrst og fremst að í ljósi þess að tiltekin landsvæði guldu fyrir þessa breytingu fyrir fjórum árum væri ótækt annað en að leggja þetta til við þingið og að hv. atvinnuveganefnd fái tækifæri til þess að glíma við þessi álitamál sem koma fram í frumvarpinu í því skyni að auka jafnræði í landinu því að það hlýtur að vera verkefni okkar allra, sama hvaðan okkar umboð kemur og úr hvaða kjördæmi.