stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Ég er kominn hingað upp til að spyrja einnar spurningar. En áður en ég ber hana upp þá ætla ég að mótmæla því sem fram kom að ekki hafi tekist að afla veiðiheimilda. Það var einfaldlega svo að hæstv. ráðherra hafði bara engan áhuga á því og bjó sér til þessa bóndabeygju sem hún er komin í hér. En spurningin sem ég ætlaði að bera upp er þessi: Hvers vegna í ósköpunum hafði hæstv. ráðherra ekkert samráð við smábátasjómenn, fulltrúa þeirra? Nú kemur flokkurinn fram og segist ætla að hafa samráð við alla og taka tillit til allra, allra kynja og ég veit ekki hvað, en í svona máli er síðan ekki rætt við einn né neinn. Hvað á það að þýða? Ég er mjög hissa á þessu. Jú, vissulega fréttist af ráðherra inni á fundi. Þar var hann að funda með forstjóra Samherja sem heimtaði að sett yrðu bönd á strandveiðarnar, og nú er hún komin með þetta frumvarp.