stjórn fiskveiða.
Virðulegur forseti. Ég veit að kenningar af þessu tagi eru eitthvað sem hv. þingmaður hefur sérstaklega gaman af. En ég hafna því, virðulegur forseti, að það séu einhverjir aðrir en mitt ráðuneyti sem hafi haldið um pennann sem skrifaði þetta frumvarp. Það er nú alltaf dálítið snúið þegar maður talar um samráð, það er auðvitað þannig, sem betur fer, að við erum með lögboðna ferla í þessu. Við gerum líka ráð fyrir því að frumvörp séu í samráðsgátt stjórnvalda og þar koma inn umsagnir. Meðal annars barst umsögn frá Landssambandi smábátaeigenda með athugasemdum þeirra og áhyggjum, og það er allt saman hluti af því sem er lesið og metið í þessu ferli. Það ber okkur að gera. Umsögn LS snýst í raun og veru um það að það sem þyrfti til væri að afnema þessa skyldu Fiskistofu til að stöðva veiðarnar þegar heimildirnar eru búnar. Það að ekki sé orðið við öllum ábendingum þýðir ekki að samráð sé ekki viðhaft.